Stjórnarandstaðan vill rannsókn á forsætisráðherra Heimir Már Pétursson skrifar 4. mars 2014 22:42
Stjórnarandstöðuflokkarnir fara fram á að Ríkisendurskoðun rannsaki styrkveitingar forsætisráðuneytisins upp á 205 milljónir króna en meira en helmingur styrkjanna hefur farið til verkefna í kjördæmi forsætisráðherra. Ríkisendurskoðun er ekki sátt við vinnubrögð ráðuneytisins. Forsætisráðuenytið hefur úthlutað 205 milljónum króna til húsfriðunar og ýmissra skyldra verefna án þess að styrkirnir væru auglýstir og af þeim hafa 111 milljónir farið til verkefna í norðausturkjördæmi, kjördæmi ráðherrans. Þingflokksformenn Vinstri grænna, Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar og Pírata hafa farið fram á að forsætisnefnd Alþingis biðji ríkisendurskoðun að rannsaka þessi mál, en í Fréttablaðiðinu á fimmtudag var greint frá því að Ríkisendurskoðun sé ekki sátt við vinnubrögðin, þar sem jafnræðis væri ekki gætt. Svandís Svarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna segir fullt tilefni til að Ríkisendurskoðun rannsaki málið frekar. „Þarna er um að ræða svör forsætisraðuneytisins við fyrirspurnum tveggja þingmannna, Katrínar Jakobsdóttur og Brynhildar Pétursdóttur varðandi úthlutun tiltekins fjár á fjárlagaliðum forsætisráðuneytisins. Og það kemur í ljós í svörum ráðuneytisins að þarna er greinilegt að góðir stjórnsýslusiðir virðast vera fyrir borð bornir. Það er ekki um að ræða gagnsæi, það er ekki um að ræða skýrt umsóknarferli og svo framvegis,” segir Svandís. Jóhannes Þ. Skúlason aðstoðarmaður forsætisráðherra segir ekki um ráðstafanir úr sjóðum að ræða. Um sé að ræða fjárheimild á fjárlagalið fyrri ríkisstjórnar frá árinu 2012 vegna er ráðherranefndar um atvinnumál sem hafi verið færður til síðasta árs og öðrum tengdum fjárlagaliðum bætt þar við. Minjastofnun hafi séð um afgreiðslu umsókna flestra styrkjanna og hafi umsjón og eftirlit með þeim og þá hafi Þjóðminjasafnið einnig komið að málum.Finnst ykkur þetta eitthvað athugavert í ljósi þeirrar staðreyndar að þarna fer um helmingur fjármuna í kjördæmi forsætisráðherra?„Það að minnsta kosti er hluti af eftirlitsskyldu þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu að spyrja slíkra spurninga og fá þá úr því skorið hvort þær séu á rökum reistar og ég vænti þess að forsætisráðherrra víki sér ekki undan því að svara þessum spurningum sem fram verða þarna bornar,“ segir Svandís. En tryggja þurfi að farið sé vel með fé og því þurfi að ríkja gagnsæi í svona málum. Og þá efist hún ekki um að þessir fjármunir hafi farið til margra verðugra verkefna.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira