Risalanga hjá Fiskikónginum Jakob Bjarnar skrifar 10. febrúar 2014 13:07 Fiskikóngurinn og þá flakarinn Chong frá Víetnam og Elyas sem kemur frá Afganistan með risann. Á 3. myndinni má svo sjá stóru lönguna í samanburði við eina sem telst eðlileg.
Kristján Berg, aka Fiskikóngurinn sjálfur, fékk á borð sitt sannkallaða risalöngu. „Stærsta langa sem ég hef á ævinni séð. Langan vigtaði 31 kg. hún var veidd á línu, laugardaginn 8. febrúar, af bátnum Beta VE 36, og landað á Hornafirði,“ segir Fiskikóngurinn. Það segir sína söguna að þetta sé stærsta langa sem Fiskikóngurinn hefur séð: „Ég hef séð þær margar. Við erum að kaup 150 tonn af löngu á ári. Og ég hef verið í þessu lengi. Að þetta sé stærsta langa sem ég hef séð segir sína söguna. Ég hef ekki heyrt af þeim stærri en það getur vel verið að þær séu til. Þetta er tveggja manna tak að flaka svona, maður hendir þessu ekkert upp með vinstri og flakar með hægri. Það þarf fjóra sterka handleggi í það.“ Fiskikóngurinn kaupir fisk daglega á uppboði, sem kemur svo til hans í búðina eldsnemma morguns. Þessi langa var í karinu sem honum barst. „Þrjár svona risastórar löngur. Þessi var stærst sem ég tók og vigtaði.“ Fiskikóngurinn segir Íslendinga heldur vilja stærri fiska en minni þó hann geri ekki upp á milli þeirra sjálfur sé litið til gæða. „Mér finnst þetta oft fallegri steikur sem koma af stórum fiskum, verður svona í flögum kjötið og girnilegra. Oftast selst meira af stærri fiski. En, kannski ekki svona megastórt. Það er lítill bragðmunur; smærri fiskur getur reyndar verið meira djúsí og sætari. Þetta er spurning um að elda hann rétt.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira