Kominn á fullt eftir veikindaleyfi bæði í ráðuneyti og á þingi Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 15. janúar 2014 15:30 Ásmundur Einar Daðason, aðstoðarmaður forsætisráðherra og þingmaður, segist ekki á leið í ríkisstjórn svo hann viti. Hins vegar muni hann sinna þeim störfum sem forsætisráðherra feli honum á hverjum tíma hver svo sem þau séu. Visir/Vilhelm „
Á meðan ég þigg engar launagreiðslur né önnur fríðindi og á meðan ég sinni afmörkuðum verkefnum sem snúa að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þá finnst mér í lagi að ég sinni störfum aðstoðarmanns forsætisráðherra og störfum þingmanns,“ segir Ásmundur Einar Daðason. Ásmundur Einar var skipaður aðstoðarmaður forsætisráðherra um miðjan nóvember og er ráðningin ótímabundin. Í desember fór Ásmundur Einar í sjúkraleyfi vegna fótameins sem hann hefur glímt við undanfarin misseri en kom galvaskur til starfa á nýjan leik í byrjun janúar. „Það er alvanalegt að þingmenn sinni einstökum verkefnum meðfram þingstörfum. Ég sinnti formennsku í hagræðingarhópnum meðfram þingmennsku á haustmánuðum án þess að nokkur gerði athugasemdir við þingsókn mína eða störf mín í nefndum þingsins.“ Ásmundur Einar er fyrsti þingmaðurinn til að sinna stöðu aðstoðarmanns ráðherra. Ýmsir hafa talið að með ráðningu hans sé verið að breyta stjórnsýslunni án þess að nokkur opinber umræða hafi farið fram um málið. „Ég lít ekki á ráðningu mína sem tímamót eða að með henni sé verið að skrifa einhverja sögu. Ég lít á stjórnmálin sem ákveðið verkefni til að koma ákveðnum hlutum í framkvæmd. Ef það er hægt að gera það með þessum hætti þá er það af hinu góða,“ segir Ásmundur Einar. Hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar lauk störfum í byrjun nóvember og hlutverk Ásmundar Einars í ráðuneytinu er að fylgja eftir hugmyndum hópsins um sparnað í ríkiskerfinu. Þær fela meðal annars í sér að sameina stofnanir, lækka stjórnunarkostnað hjá hinu opinbera, færa sambærileg verkefni á einn stað sem nú er sinnt í mörgum ráðuneytum og fleira. Hann segir fyrirhugaðar hagræðingaraðgerðir þurfi ekki að kalla ekki uppsagnir hjá ríkinu. „Forsætisráðherra hefur sagt að það sé hægt að komast hjá uppsögnum með því að draga úr nýráðningum og fækka opinberum starfsmönnum á þann hátt,“ segir hann. Auk þessara verkefna sinnir Ásmundur Einar verkefnum sem snúa að slitastjórnum föllnu bankanna. „Þau snúa að hinum pólitísku þáttum og tengingu við flokksmenn Framsóknarflokksins og fólkið í grasrótinni,“ segir hann. Opinberir starfsmenn eru með lausa samninga og hafa sagt að þeir þurfi umtalsverðar kjarabætur en á meðan vill ríkið draga úr kostnaði. „Samhliða auknum hagræðingaraðgerðum verður hver starfsmaður hins opinbera að skila meiru. Menntamálaráðherra hefur til að mynda lagt fram tillögur um að stytta framhaldsskólann, með því að stytta hann er til dæmis ekki ólíklegt að það skapist svigrúm sem að hluta til verður hægt að nota til að hækka laun kennara og að hluta til að bæta hag ríkissjóðs.“ Ásmundur Einar segist ekki á leið í ríkisstjórn svo hann viti. „Ég geri ekki ráð fyrir að ég sé á leið í ríkisstjórn. Ég tek hins vegar að mér þau verkefni sem forsætisráðherra felur mér á hverjum tíma hver svo sem þau eru,“ segir hann.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira