Ákvörðun bæjarstjórnar í Kópavogi er ólögleg Heimir Már Pétursson skrifar 15. janúar 2014 19:45
Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins og formenn flokksfélaga Framsóknarflokksins í Kópavogi komu saman til funda seinnipartinn í dag til að ræða þá ólgu sem komin er upp í bæjarstjórn vegna óvæntrar samþykktar bæjarstjórnar í gærkvöldi. Það er óhætt að segja að það hrikti í stoðum meirihlutasamstarfs Sjálfstæðismanna, Framsóknarmanna og Y-lista eftir að Gunnar Birgisson gekk til liðs við minnihlutann í atkvæðagreiðslu um húsnæðismál í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkurinn í bænum er greinilega klofinn í tvær fylkingar sem annars vegar fylgja Gunnari að málum og hins vegar Ármanni Kr. Ólafssyni núverandi bæjarstjóra. Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar klukkan fimm en Ármann hefur nú þegar fengið mótframboð í fyrsta sætið frá Margréti Friðriksdóttur skólameistara Menntaskólans í Kópavogi.En er þessi staða til marks um það að bæjarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins sé klofin? „Ég vona að svo sé ekki. Það er mikil áhersla lögð á það hjá okkur Sjálfstæðismönnum að flokkurinn standi heilshugar saman í bæjarstjórn, ekki hvað síst þegar við erum að fara í glæsilegt prófkjör þar sem í framboði eru fimmtán frambjóðendur. Og ég vona að við berum gæfu til að ljúka þessu kjörtímabili án þess að klofna,“ segir Bragi Mikaelsson formaður stjórnar kjördæmisráðsins. Hann segir erfitt að búa við þessa tillögu, enda snúist hún um stórar fjárhæðir. Betra hefði verið að afgreiða húsnæðismálin á breiðum grunni í samstarfi við ríki og önnur sveitarfélög. En heldur Bragi að hægt sé að breyta þessari ákvörðun sem löglegur meirihluti tók á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi? „Ég get ekki svarað þeirri spurningu. Ég hefði talið betra að undirbúa þetta betur,“ segir Bragi. Og Framsóknarmönnum er langt í frá skemmt í þessari stöðu, en formenn Framsóknarfélaganna komu saman til fundar nú klukkan sex, til að meta framtíð meirihlutasamstarfsins.Er meirihlutinn starfhæfur eftir þessa uppákomu í gærkvöldi? „Við sáum það í gær að þá myndaðist minnihluti í meirihlutanum. Þannig að við erum í starfhæfum minnihluta að minnsta kosti.,“ segir Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins. En dugar það fram á vorið? „Það er alveg ljóst að það er ekkert á Gunnar treystandi í þessu. Þannig að ég tel að við verðum að skoða þá möguleika að ræða við Samfylkinguna, Vinstri græna og Y-listann, hvort ekki þurfi að mynda starfandi stjórn,“ segir Ómar.Er hægt að snúa þessari ákvörðun við sem tekin var í gær? „Hún er klárlega ólögleg fyrir það fyrsta. Það eru lög í landinu sem segja til um hvernig á að vera með viðauka við fjárhagsáætlun. Þannig að hún er ólögleg,“ segir oddviti Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Kópavogs.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira