"Við teljum að málið sé komið í öngstræti" Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. febrúar 2013 14:00
Framsóknarmenn eru tilbúnir að styðja að einstakar breytingar verði gerðar á stjórnarskránni fyrir kosningar en síðan verði vinnu við stjórnarskrárbreytingar haldið áfram á næsta kjörtímabili. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins. Framsóknarmenn eru tilbúnir að styðja breytingar á stjórnarskránni núna ef þar verða inni ákvæði um auðlindir í þjóðareign og ákvæði um beint lýðræði. Framsóknarmenn höfðu það sem eitt af sínum helstu stefnumálum fyrir kosningarnar 2009 að breyta stjórnarskránni með stjórnlagaþingi. Skiptar skoðanir eru hins vegar um í hvaða farvegi málið er nú. Næsti þingfundur er á þriðjudag en dagskrá þingsins hefur ekki verið birt. Og því óvíst hvenær önnur umræða um stjórnarskrármálið hefst. Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að flestir flokkar hafi talað um mikilvægi þess að halda ákvæði um auðlindir í þjóðareign inni í frumvarpinu. Sigurður Ingi segir einnig að framsóknarmenn séu tilbúnir að styðja breytingar á einstökum ákvæðum. „Við bendum á það sem við bentum á í byrjun janúar, að við teljum að málið sé komið í öngstræti og margir stjórnarliðar viðurkenna það. Það er vilji til að setjast niður yfir ákveðnum ákvæðum, finna lausnir og halda síðan áfram á næsta kjörtímabili," segir Sigurður Ingi.Sp. blm. Að ljúka vinnu í einstökum ákvæðum núna og ljúka síðan þessari vinnu á næsta kjörtímabili? „Já, það er það sem við höfum bent á og samþykktum á okkar flokksþingi um daginn. Í þeim efnum bendum við sérstaklega auðlindaákvæðið og aukið beint lýðræði."
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira