Innlent

Enginn iPhone í platleik

MYND/FACEBOOK
Notendur Facebook kannast vafalaust flestir við þá fjölmörgu leiki, happdrætti og getraunir sem fyrirtæki af ýmsum toga standa þar fyrir. Svo virðist sem að 16 ára gamall piltur hafa fengið sig fullsaddann af þessu. Hann stofnaði prófílinn Apple tæki þar sem fólki var lofað spánýjum iPhone 5 snjallsíma ef það dreifði og „líkaði" við síðuna.

Það átti síðan að opinbera sigurvegarann klukkan tvö í dag en þá höfðu hátt í tvö þúsund manns dreift myndinni. En ekkert nafn kom, þess í stað birtust þessi einföldu, en jafnframt dularfullu skilaboð: „Ostur."

Stuttu seinna birti stjórnandi síðunnar þessi skilaboð:

„Þessi síða var gerð af 16 ára ungum pilti sem vildi kanna hversu auðvelt væri að fá fólk til að læka síðu sem getur alveg eins verið að birta ruslpóst á 5 mínútna fresti sem myndi birtast á fréttaveitunni þeirra. Líka til að kanna neysluhyggju fólks sem vill ekki eiga símann sinn vegna þess að hann er tveggja ára gamall eins og ég sá í sumum commentum. Ég vill bara segja ekki deila hlutum sem eru frá óþekktum aðilum. ;)"

Viðbrögð fólks hafa verið misjöfn, sumir sjá eftir símanum og á meðan aðrir fagna uppátækinu. Meðfylgjandi ljósmynd var síðan birt þar sem sigurvegarinn var dreginn út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×