Trú, skoðun og kærleikur Þórhallur Hafþórsson skrifar 4. október 2013 06:00 Ég las setningu á netinu sem vakti upp með mér djúpar hugleiðingar. Setningin var: „Ekki er kristið fólk á Gay Pride að mótmæla samkynhneigð“ Þessi setning kom fram í umræðu um mannréttindahátíðina Glæstar vonir sem var haldin í Laugardal. Þar kom fólk saman til að minnast þess hvað það er mikilvægt að mannréttindi séu til staðar í samfélagi manna, jafnt á Íslandi sem í öllum heiminum. En á sama tíma var önnur samkoma, Hátíð vonar, haldin í Laugardalnum. Það hefur verið mikið gagnrýnt að predikaranum Franklin Graham hafi verið boðið að halda ræðu þar. Hann hefur hlotið gagnrýni meðal annars fyrir það að predika gegn hjónabandi samkynhneigðra og að samkynhneigð sé synd að hans mati. Hann vil eiga þann rétt að vera þeirrar skoðunar. Þegar ég les þetta orð, skoðun, er eins og heilinn á mér snarhemli og ég finn mig stara á orðið. Ég á erfitt með að skilja setninguna í heild sinni. Það að líkja saman trú og skoðun og kynhneigð þykir mér furðulegt. Skoðun eru jú eitthvað sem ég mynda mér. Trú er eitthvað sem ég uppgötva, ekki af völdum skoðana. Kynhneigð er hvorki trú né skoðun. Það er ekki hægt að velja trú, hana finnur maður. Ef ég trúi á einhvern guð, eða ekki, þá er það ekki vegna þess að ég ákvað það, heldur vegna þess að ég einfaldlega trúi eða trúi ekki. Ég ákveð heldur ekki kynhneigð mína og því er ekki hægt að hafa skoðun á henni. Ég ákvað ekki að fæðast sem manneskja, móðir mín og faðir eru manneskjur og þess vegna getur enginn verið þeirra skoðunar að ég sé hvalur eða fiðrildi. Ég er það sem ég fæðist og finn og hugsa. Ég trúi því sem ég trúi, ekki því sem mér er kennt. Skoðun er allt annað mál. Ég hef til dæmis þá skoðun að mér finnst nýju gleraugun mín rosalega flott. Því má alveg mótmæla og rökræða fram og til baka. Kynhneigð ætti ekki að skipta máli. Ætti ekki að þurfa að vera til umræðu. Það kemur foreldrum mínum ekkert við hvort ég sé samkynhneigður eða ekki. Það sama á við um systkin mín, ömmur og afa, vini, bekkjarfélaga, viðskiptavini og aðra einstaklinga. Eina undantekningin er einstaklingar sem verða hrifnir af mér. Ef einhver verður hrifinn af mér er mikilvægt fyrir þá manneskju að vita hvort ég geti endurgoldið tilfinninguna, en annars ekki. Í fullkomnu samfélagi væri engin þörf á því að „koma út úr skápnum“. Skápurinn væri einfaldlega ekki til. Allir myndu vera inni í sama rými og njóta sjálfsagðra mannréttinda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar