Næ ekki fullum krafti í skotin Stefán Árni Pálsson skrifar 4. október 2013 07:00 Alexander setur stefnuna á að ná sér að fullu eftir aðgerð á öxl. nordicphotos/getty
Alexander Petersson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen, þurfti að gangast undir skurðaðgerð á öxl í byrjun sumars til að ráða bót á þrálátum axlarmeiðslum. Þessi örvhenta skytta hefur undanfarin ár þurft að leika þrátt fyrir meiðslin og hann hefur ýmist verið sárþjáður eða mjög vel deyfður. Alexander tók því þá ákvörðun að fara í nauðsynlega aðgerð í byrjun júní. Alexander leikur ásamt Rúnari Kárasyni og Stefáni Rafni Sigurmannssyni undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar hjá Rhein-Neckar Löwen en skyttan hefur farið nokkuð vel af stað með ljónunum á tímabilinu. „Aðgerðin sjálf gekk vel og var ég frekar fljótur að komast af stað en því miður eru enn þá verkir sem valda því að ég get ekki náð fullum krafti í skotin,“ segir Alexander. „Það er alltaf erfitt að segja til um það hvort maður eigi eftir að ná sér að fullu eftir aðgerð á skothendi, en ég verð að vona það besta,“ segir Alexander. Hann lék ekki með íslenska landsliðinu á HM á Spáni í janúar vegna meiðslanna en hann hefur verið einn mikilvægasti leikmaður íslenska landsliðsins undanfarin ár.Hefði sennilega átt að hvílast „Síðustu tvö tímabil hafa verið upp og niður, alltaf verkir en misjafnlega miklir. Það voru tímar þar sem ég hefði sennilega betur átt að taka hvíld.“ Þýska deildin fer vel af stað en meistararnir í Kiel hafa fullt hús stiga og lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Rhein-Neckar Löwen hafa ekki enn tapað leik og gert eitt jafntefli. Það má því fastlega búast við því að Alexander og félagar eigi eftir að vera í toppbaráttu í vetur. „Við getum hæglega farið alla leið á þessu tímabili en það eru fjögur önnur lið sem gætu það einnig, deildin verður spennandi.“ Íslenska landsliðið tekur þátt á Evrópumótinu í handknattleik sem fram fer í Danmörku í janúar á næsta ári. Íslenska liðið hefur undanfarinn áratug verið með eitt besta handboltalið í Evrópu. „Það eru spennandi tímar fram undan með landsliðinu en mikil vinna, þá sérstaklega fyrir Aron Kristjánsson [landsliðsþjálfara]. Ef allir eru að mestu meiðslalausir og í góðu formi er allt mögulegt. Því miður fá margir leikmenn ekki margar spilamínútur í liðunum sínum sem er visst áhyggjuefni að mínu mati. EM er mjög sterkt mót og þetta verður erfitt verkefni en við höfum oft sýnt að það eflir okkur bara.“
Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Sjá meira