Snákur í Krónunni Jón Júlíus Karlsson skrifar 4. október 2013 13:29 Viðskiptavinur fullyrðir að hafa séð snák í verslun Krónunnar í Kórahverfi í dag. Snákurinn var um hálfur metri að lengd. Mynd/Heiða
Viðskiptavinur Krónunnar í Kórahverfi fullyrðir í samtali við fréttastofu að hafa séð snák í verslunni í morgun. Kona var í verslunni skömmu fyrir hádegi ásamt tveimur ungum dætrum sínum þegar þær ráku augun í snák sem hlykkjaði sig áfram eftir gólfinu. Snákurinn var um hálfur metri að lengd og urðu telpurnar mjög skelkaðar. Snákurinn elti aðra telpuna og rak út tunguna. Starfsmönnum verslunarinnar var gert viðvart. Í samtali við fréttastofu sagðist verslunarstjóri hafa kallað til meindýraeyði sem fjarlægði snákinn. Ekki fengust upplýsingar um afdrif snáksins. Um kornsnák var um að ræða, brúnn og gulur að lit. „Við erum í snyrtideildinni og þá segir dóttir mín að það sér snákur hérna á gólfinu. Ég hélt áfram en þá segir hún aftur að snákurinn hreyfist. Mér verður litið við og þá sé ég þennan snák á golfinu, brúnn og gulur að lit,“ segir Gunnhildur Sveinbjarnadóttir sem var í Krónunni ásamt dætrum sínum í morgun.„Það var fullt af fólki í kringum okkur þannig að það voru vitni að þessu og fólk varð mjög smeykt. Maður náttúrulega veit ekkert hvað þetta getur gert.“ Ekki er algengt að skriðdýr og snákar berist hingað til lands í verslanir en líklegt þykir að snákurinn hafi borist með vörusendingu erlendis frá. Verslunarstjóri Krónunar vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu. Krónan í Kórahverfi opnaði fyrir skömmu. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.Krónan harmar atvikið Krónan harmar atvik sem upp kom í verslun fyrirtækisins í Vallakór í Kópavogi í morgun þar sem fannst snákur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krónunni. Um var að ræða ungan kornsnák, u.þ.b. 20 cm langan og var hann líklega um mánaðargamall að mati sérfræðinga. Strax var leitað til meindýraeyðis sem fjarlægði snákinn og aflífaði. „Krónan leggur mikið upp úr öryggi bæði viðskiptavina sinna og öryggi allra þeirra matvæla sem seld eru í verslunum hennar. Búið er að fara í gegnum grænmeti og ávexti í viðkomandi verslun og því skipt út fyrir nýtt. Sett hefur verið af stað ítarleg athugun á því hvernig þetta gerðist. Meðal annars hefur verið haft samband við flutningafyrirtæki og innflutningsaðila grænmetis og ávaxta sem selt er í verslunum Krónunnar til að ganga úr skugga um að um einangrað tilvik sé að ræða. Einnig hefur öryggisdeild fyrirtækisins farið í gegnum myndir úr öryggismyndavélum í versluninni,“ segir í tilkynningu frá Krónunni. Rekstarstjóri Krónunnar ræddi við viðskiptavininn sem uppgötvaði snákinn í morgun og upplýsti hana um viðbrögð fyrirtækisins. Fyrirtækið ætlar jafnframt að fara yfir viðbragðsáætlanir hjá fyrirtækinu með það fyrir augum að allir starfsmenn kunni rétt viðbrögð þegar sambærilegt atvik kemur upp.Fréttin var uppfærð kl. 15:40
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira