Vigdís segir engin leyndarmál í hagræðingarhópnum Heimir Már Pétursson skrifar 4. október 2013 13:09 Svandís Svavarsdóttir og Vigdís Hauksdóttir.
Þingflokkur Vinstri grænna fer fram á að forsætisráðherra afhendi öll gögn um störf hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar. Vigdís Hauksdóttir segir þetta hið besta mál enda hafi hagræðingarhópurinn ekkert að fela. Þingflokkur Vinstri grænna hefur með vísan til upplýsingalaga og í ljósi yfirstandandi umfjöllunar á Alþingi um fjárlagafrumvarpið og tengd mál óskað eftir afriti af öllum gögnum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar sem tók til starfa samkvæmt erindisbréfi í júlí síðast liðnum. Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna segir tillögur hópsins hljóta að snerta fjárlagaumræðuna sem nú standi yfir á Alþingi. „Og við teljum mikilvægt, ekki síst í ljósi þess að þarna er formaður fjárlaganefndar í hópnum, að við fáum að sjá hvaða vangaveltur hafa verið þarna upp á borðinu,“ segir Svandís. Óskað er eftir erindisbréfinu, fundargerðum, tölvupóstum til hópsins og frá honum auk lista yfir gesti og viðmælendur hópsins. Jafnframt er óskað eftir greinargerðum og skjölum öðrum en ófrágengnum vinnugögnum. Loks óskar þingflokkur Vinstri grænna eftir þeim tillögum sem hópurinn hafi þegar skilað af sér til ráðherranefndar um ríkisfjármál. „Einfaldlega vegna þess að við viljum vita hvaða sjónarmið eru þarna á ferðinni, hvaða forgangsröðun og umræða á sér stað þarna. Við verðum vör við það í umræðu um fjárlagafrumvarpið að menn tala eins og þarna sé bara hugmynd á ferðinni og sumir ganga jafnvel svo langt að þarna séu bara vangaveltur en ekki frumvarp fjármálaráðherra og þar með frumvarp beggja þingflokkanna,“ segir Svandís. Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar, sem einnig á sæti í hagræðingarhópnum, segir alla þingmenn vita að fjárlög taki breytingum í meðförum þingsins og þeir 63 þingmenn sem sitji á Alþingi hafi fjárveitingarvaldið. „Þannig að við skulum bara leyfa þessu að fara af stað. Það er enn verið að ræða frumvarpið í fyrstu umræðu og svo kemur það formlega til nefndarinnar eftir helgi,“ segir Vigdís. Hún gerir engar athugasemdir við ósk Vinstri grænna um afhendingu gagna hagræðingarhópsins. „Það er bara hið besta mál. Þetta erindi hlýtur að fara í farveg og ráðuneytið síðan meta það hvort þetta falli ekki undir birtingargrein upplýsingalaga,“ segir hún. Það séu engin leyndarmál í gögnum hagræðingarhópsins. „Hagræðingarhópurinn hefur ekkert að fela. Ég myndi frekar segja, að þegar okkar tillögur birtast held ég að þær eigi eftir að vekja gleði og von í brjósti landsmanna,“ segir Vigdís.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira