187% verðmunur á ávaxtaperum Jón Júlíus Karlsson skrifar 4. október 2013 11:27 Ávaxtapera var dýrust á 799 kr. hjá 10/11 en ódýrust á 278 kr. hjá Iceland sem gerir 521 kr. verðmun eða 187%. Mynd/365
Í nýrri verðlagskönnun sem ASÍ framkvæmdi víðsvegar um land mánudaginn 30. september síðastliðinn kemur í ljós að verslunin Bónus í Borgarnes var oftast með lægsta verðið. Verð voru könnuð í lágvöruverðsverslunum, stórmörkuðum og klukkubúðum. Hæsta verðið var oftast að finna í verslun 10/11 Laugavegi eða í meira en helmingi tilvika. Verðurinn á hæsta og lægsta verði vöru var frá 25% upp í 75% en í þriðjungi tilvika var meira en 75% verðmunur. Mestur var verðmunurinn 187%.Mikill verðmunur á ávöxtum og grænmeti Af þeim 127 matvörum sem skoðaðar voru, var munur á hæsta og lægsta verði sjaldnast undir 25% og í þriðjungi tilvika var hann yfir 75% verðmunur. Minnstur verðmunur var á Goða kindakæfu, sem var ódýrust á 1.693 kr./kg. hjá Krónunni en dýrust á 1.840 kr./kg. hjá Nettó, Samkaupum-Úrvali og Kaskó, verðmunurinn var 147 kr. eða 9%. Mestur verðmunur í könnuninni var ávaxtaperu, sem var dýrust á 799 kr. hjá 10/11 en ódýrust á 278 kr. hjá Iceland sem gerir 521 kr. verðmun eða 187%. Oftast var yfir 100% munur á hæsta og lægsta verði ávöxtum og grænmeti. Af þeim vörum sem til voru í öllum verslunum má nefna að mikill verðmunur var á 300 gr. smjörva sem var ódýrastur á 286 kr. hjá Bónus en dýrastur á 439 kr. hjá 10/11 sem er 53% verðmunur. Annað dæmi um mikinn verðmun má nefna Ritz kex 200 gr. sem var ódýrast á 177 kr. hjá Bónus en dýrast á 329 kr. hjá 10/11 sem er 152 kr. verðmunur eða 86%. Pepsi max 2 l. var ódýrast á 209 kr. hjá Bónus en dýrast á 459 kr. hjá 10/11 verðmunurinn 250 kr. eða 120%. Kakóið Swiss Miss m/sykurpúðum 737 gr. var ódýrast á 699 kr./kg. hjá Iceland en dýrast á 927 kr. hjá Samkaupum-Strax, verðmunurinn er 33%. Sjá frekari upplýsingar um verðmun í töflu.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira