Skoðun

Tími Katrínar er kominn

Þorvaldur Örn Árnason skrifar
Ég hef fylgst með Katrínu Jakobsdóttur frá því hún var stálpuð stelpa í Ungum vinstri grænum og séð hana vaxa og þroskast sem stjórnmálamann. Mér finnst það ekki lítið afrek að sigla mennta- og menningarmálaráðuneytinu gegnum hrunið nánast átakalaust. Það er þó ekki vegna þess að hún hafi setið aðgerðalaus, það hefur margt gerst tengt hennar ráðuneyti og mikið mætt á því. Henni hefur tekist að sameina fólk til góðra verka við afar erfiðar aðstæður.

Kunningi minn, sem ekki er flokksbróðir okkar en hefur mikil samskipti haft við Katrínu, lýsir henni og hæfileikum hennar á þessa leið:

Þrátt fyrir ungan aldur, aðeins 37 ár, er Katrín orðin fjórði reynslumesti menntamálaráðherra Íslandssögunnar. Aðeins Gylfi Þ., Björn Bjarnason og Þorgerður Katrín hafa verið fleiri daga í embætti en Katrín. Það er gaman að fylgjast með Katrínu, sem er ávallt geislandi af orku, gagnrýnin, tilbúin að hlusta og leysa mál, án þess að lenda í illdeillum við menn. Hún nýtur gríðarlegs trausts sem nær langt út fyrir raðir flokksmanna og er mögulega með skýrustu framtíðarsýn sem nokkur stjórnmálamaður síðari tíma hefur haft. Hún er reyndar afar lítillát og er ekki fyrir að vera með hávaða og nær því sjaldan athygli fjölmiðla, en er mjög vinnusöm og hefur auk þess ljósmyndaminni og er svakalega fljót að setja sig inn í mál. Svo er hún líka afar skemmtileg viðkynningar, algjörlega laus við hroka og vill helst aldrei nota vald til að ná niðurstöðu. Nánast fullkominn leiðtogi. Veit ekki alveg hvaða galla er hægt að nefna hjá henni, en það væri þá helst að vera ekki nægilega dugleg að kynna framtíðarsýnina sem hún býr yfir, og að hafa ekki hreinlega stigið skrefið til fulls innan flokksins, þ.e. að leiða VG og fá þjóðina með sér. Stundum mætti hún jafnvel sýna tennurnar og vera töff.

Nú getur öll þjóðin fagnað því að Katrín Jakobsdóttir hefur stigið skrefið til fulls, nú þegar hinn framsýni og kraftmikli leiðtogi, Steingrímur J. Sigfússon, hefur stigið til hliðar eftir glæsilegan feril sem formaður frá stofnun hreyfingarinnar. Sem betur fer njótum við áfram krafta og reynslu Steingríms en Katrín mun slá efsta tóninn í þeirri hljómkviðu sem Vinstri hreyfingin –grænt framboð er. Það eru margar ólíkar og öflugar raddir í þessum stóra kór og nú reynum við að sjá til þess að hvergi heyrist falskur tónn. Að við félagsmenn verðum áfram heil og sönn í því sem við gerum og samtaka þegar á reynir.

Við erum komin með undir stýri unga, öfluga konu sem hæfir vel jafnréttissinnaðri kvenfrelsishreyfingu. Nú er fram undan að tryggja Vinstri hreyfingunni –grænu framboði góða kosningu í vor svo hæfileikar Katrínar fái notið sín til fulls, alþjóð til góðs.




Skoðun

Sjá meira


×