Innlent

Ríflega fjórðungur íbúa Reykhólahrepps 10 ára og yngri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Af 133 íbúum Reykhólaþorps um áramótin voru 34 börn tíu ára og yngri. Það svarar til 25,6% eða ríflega fjórðungs allra íbúa þorpsins.

Þetta kemur fram á heimasíðu Reykhólahrepps þar sem vísað er í tölur Hagstofu Íslands. Hlutfall barna tíu ára og yngri á landinu öllu er 15,3% en hlutfallið er 14,6% í Reykjavík.

Fyrir átta árum var mannfjöldinn á Reykhólum 114 en þar af voru börn tíu ára og yngri 21 eða 18,4%. Síðan þá hefur íbúum á Reykhólum fjölgað um 16,7% en börnum tíu ára og yngri um 62%.

Sjá frétt á vef Reykhólahrepps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×