Kæru Reykvíkingar og aðrir landsmenn Eva Einarsdóttir skrifar 15. júní 2013 06:00 Nú styttist í 168. dag ársins. Fyrir marga hefur það svo sem ekki mikla þýðingu en þann dag þekkjum við betur sem 17. júní, þjóðhátíðardag Íslendinga, daginn sem við fögnum sjálfstæði okkar, og á næsta ári fögnum við hvorki meira né minna en 70 ára afmæli lýðveldisins. 17. júní er mörgum kær, þá sérstaklega börnum og ungmennum. Hátíðardagskrá í tilefni dagsins hér í Reykjavík er einmitt skipulögð með þeim hætti að börn, ungmenni og fjölskyldan öll geti skemmt sér vel og átt góðan dag saman. Dagskráin í ár er með hefðbundnu sniði, enda sýndi það sig þegar gerð var könnun meðal Reykjavíkinga um hvernig þeir vildu haga hátíðarhöldunum að flestir vildu litlar breytingar. Þó þykir mér mikilvægt að vera með puttann á púlsinum og vera opin fyrir því að bjóða upp á eitthvað nýtt og skapandi. Í ár mun Reykjavíkurborg í samstarfi við Hörpu tónlistarhús bjóða upp á fjölbreytta dagskrá og húsið verður opið öllum. Þetta er skemmtileg viðbót við hátíðarhöldin og stækkar það svæði þar sem dagskrá fer fram, sem teygir sig allt frá hafnarbakkanum yfir að Hljómskálagarðinum. Eins kemur Bókmenntaborg UNESCO að dagskránni þar sem leikkonur munu flytja úrval skemmtilegra ljóða hér og þar í Kvosinni, í Mæðragarði, í Bríetarbrekku, Hljómskálagarði og við styttu Tómasar Guðmundssonar við Tjörnina. Metnaðarfull tónlistardagskrá verður á Arnarhóli og í ár verður henni útvarpað beint á Rás 2. Þeim sem leiðist mannmergðin og klístraðar hendur geta því hlustað við útvarpstækið heima, sem og landsmenn allir um allt land. Skrúðgöngur, fánar, morgunathöfnin við Austurvöll, upphlutur, fjallkonan, kransinn á leiði Jóns Sigurðssonar, skátar, spariföt, kandífloss, Brúðubíllinn og tónleikar á Arnarhóli eru meðal þess sem boðið verður upp á í miðborg Reykjavíkur á þjóðhátíðardaginn. Bætum við gleði, náungakærleika og þakklæti og þá erum við komin með hinn fullkomna dag. Gleðilega þjóðhátíð – og góða skemmtun! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Nú styttist í 168. dag ársins. Fyrir marga hefur það svo sem ekki mikla þýðingu en þann dag þekkjum við betur sem 17. júní, þjóðhátíðardag Íslendinga, daginn sem við fögnum sjálfstæði okkar, og á næsta ári fögnum við hvorki meira né minna en 70 ára afmæli lýðveldisins. 17. júní er mörgum kær, þá sérstaklega börnum og ungmennum. Hátíðardagskrá í tilefni dagsins hér í Reykjavík er einmitt skipulögð með þeim hætti að börn, ungmenni og fjölskyldan öll geti skemmt sér vel og átt góðan dag saman. Dagskráin í ár er með hefðbundnu sniði, enda sýndi það sig þegar gerð var könnun meðal Reykjavíkinga um hvernig þeir vildu haga hátíðarhöldunum að flestir vildu litlar breytingar. Þó þykir mér mikilvægt að vera með puttann á púlsinum og vera opin fyrir því að bjóða upp á eitthvað nýtt og skapandi. Í ár mun Reykjavíkurborg í samstarfi við Hörpu tónlistarhús bjóða upp á fjölbreytta dagskrá og húsið verður opið öllum. Þetta er skemmtileg viðbót við hátíðarhöldin og stækkar það svæði þar sem dagskrá fer fram, sem teygir sig allt frá hafnarbakkanum yfir að Hljómskálagarðinum. Eins kemur Bókmenntaborg UNESCO að dagskránni þar sem leikkonur munu flytja úrval skemmtilegra ljóða hér og þar í Kvosinni, í Mæðragarði, í Bríetarbrekku, Hljómskálagarði og við styttu Tómasar Guðmundssonar við Tjörnina. Metnaðarfull tónlistardagskrá verður á Arnarhóli og í ár verður henni útvarpað beint á Rás 2. Þeim sem leiðist mannmergðin og klístraðar hendur geta því hlustað við útvarpstækið heima, sem og landsmenn allir um allt land. Skrúðgöngur, fánar, morgunathöfnin við Austurvöll, upphlutur, fjallkonan, kransinn á leiði Jóns Sigurðssonar, skátar, spariföt, kandífloss, Brúðubíllinn og tónleikar á Arnarhóli eru meðal þess sem boðið verður upp á í miðborg Reykjavíkur á þjóðhátíðardaginn. Bætum við gleði, náungakærleika og þakklæti og þá erum við komin með hinn fullkomna dag. Gleðilega þjóðhátíð – og góða skemmtun!
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar