Ólafur getur fengið þig til að trúa á hvað sem er Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. júní 2013 19:29 „
Ég hef spilað með mörgum góðum en hann er besti handboltamaður og væntanlega einn magnaðasti karakter og persónuleiki sem maður hefur kynnst í gegnum tíðina," segir Guðjón Valur Sigurðsson um Ólaf Stefánsson. Guðjón Valur verður í eldlínunni með íslenska karlalandsliðinu í handbolta gegn Rúmenum í Laugardalshöll annað kvöld. Leikurinn er sá síðasti í undankeppni EM 2014 og um leið kveðjuleikur Ólafs með landsliðinu. Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður á Stöð 2, hitti á Guðjón Val fyrir landsliðsæfingu í Laugardalnum í dag. „Hann er búinn þeim hæfileika að geta fengið þig til að trúa á hvað sem er. Það hafa margir landsliðsmenn fengið að reyna. Hann er góður maður heim að sækja líka. Þetta er ekki allt samað bundið við handbolta hjá mér. Við höfum verið saman í liði og landsliði lengi. Maður hefur eytt mörgum klukkutímum með honum og það er tími sem manni þykir rosalega vænt um í augnablikinu," segir Guðjón Valur. Hann segir Ólaf góðan mann, ofsalega vitran auk þess að vera rólegur og yfirvegaður. „Mér finnst að Íslendingar eigi að líta á það þannig að það hafi verið forréttindi að fá að horfa á hann og fengið að eiga hlut í honum og hlut í hans ferli því hann er náttúrulega stoltur Íslendingur. Ég lít á það sem forréttindi oghann hefur gert mig að betri leikmanni í gegnum tíðina," segir Guðjón Valur. Aðspurður hvort Ólafur sé galdramaður með boltann segir hornamaðurinn: „Við skulum segja að hann sé góður handboltamaður. Ég hef aldrei séð hann láta boltann hverfa. Kannski býður hann upp á það á morgun. Kannski kemur hann með eitthvað nýtt," sagði Guðjón Valur og hló.
Mest lesið Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Enski boltinn Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 Valur - Keflavík | Slagur upp á líf og dauða Körfubolti „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Fótbolti „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Fótbolti Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Enski boltinn Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Sport Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Körfubolti Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Körfubolti Fleiri fréttir Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Sjá meira