Þakkir til landlæknis Auðbjörg Reynisdóttir skrifar 4. janúar 2013 08:00 Loksins fékk ég svar við erindi mínu sem ég sendi Embætti landlæknis (EL) þann 13. mars 2012 kl. 17.13 þegar ég óskaði eftir upplýsingum um verkferla þegar kæra berst embættinu. Það kom mér á óvart að fá svar hér á síðum Fréttablaðsins þann 29.12. 2012. Grein landlæknis og Önnu Bjargar Aradóttur sviðsstjóra var reyndar ekki beint til mín heldur var hún sjálfsvörn eftir kröftuga grein Árna R. Árnasonar tveimur dögum áður. Ég sendi áðurnefnda fyrirspurn eftir að hafa kært fjögur mál til embættisins. Mig undraði að meðferð málanna væri með ólíkum hætti og vildi ég vita hvernig þetta ætti að vera. Nú hef ég loksins fengið svar og ljóst að ekkert málanna var unnið samkvæmt þeim verkferlum sem Geir og Anna lýsa í greininni með einni undantekningu þó. Í öllum tilvikum fékk ég bréf um að kæran hefði borist embættinu. Tvö málanna er ég að undirbúa fyrir umboðsmann Alþingis eftir langt ferðalag í ráðuneytinu. Ég kýs að hlífa lesendum við upptalningu mistaka embættisins í mínum málum en nefni eitt dæmi hér á eftir. Ég get með góðri samvisku tekið undir með Árna um að vinnubrögðum embættisins er verulega ábótavant í kærumálum. Áhugasamir geta sent mér línu á audbjorgreynis@gmail.com því ég er fús að upplýsa um það. Spennandi er að sjá hvort einhver frá embættinu hefur í raun hugrekki til að hafa samband og kynna sér eigin mistök.Smjaðursleg yfirlýsing Greinarhöfundar bjóða upp á uppbyggilega umræðu um störf embættisins og langar mig að nota tækifærið og halda áfram frá fyrri greinum mínum sem ég veit ekki betur en hafi verið á uppbyggilegum nótum. Landlæknir nefnir þverfaglegt teymi sem tekur við öllum kærum. Væri ekki snjallt að hafa umboðsmann sjúklinga þar inni? Hann þarf að hafa formlega aðkomu að umfjöllun um öryggi sjúklinga og ekki síst tryggja hagsmuni þeirra sem kæra. Samsetning teymisins skiptir máli og óháð staða þess verður að vera augljós, annars verður ekkert traust. Rannsóknin þarf einnig að vera trúverðugri en með bréfaskriftum milli kollega. Í mínum huga skapar alvörurannsókn meira traust og aðhald en smjaðursleg yfirlýsing landlæknis í lok greinarinnar. Þar reynir hann að fullvissa landsmenn um heilindi embættismanna og álitsgjafa sinna á sama tíma og hann ásakar Árna um að grafa undan trausti embættisins og jafnvel kennir honum um að gera álitsgjafa óstarfhæfa. Í mínum huga er þetta hvorki uppbyggileg né fagleg umræða. Réttur sjúklinga á ekki að vera háður heilindum starfsmanna. Þessi yfirlýsing landlæknis er því álíka innihaldsrík og Völuspáin.Ofbeldi og mannréttindabrot Ef embættið vill í raun og veru að skapa traust væri þá ekki betra að birta gögn um kærumál á sömu nótum og dómstólar gera í viðkvæmum málum er lúta að persónuvernd? Mér þætti eðlilegra að hafa störf svona teymis opinber til að skapa traust fremur en að hafa allt í þoku og enginn getur fjallað um hlutina á eðlilegan hátt. Í einu mála minna lítur út fyrir að bótaréttur hafi fyrnst á meðan embættið rannsakaði málið. Því velti ég fyrir mér hæfi lögfræðingsins í teyminu sem greinilega gætti hagsmuna spítalans en ekki minna hagsmuna. Annar aðili í þessu teymi, jafnframt eini tengiliður embættisins við mig varðandi málið, var yfirmaður þeirra sem gerðu mistökin er leiddu son minn til dauða. Var hann kannski líka vanhæfur? Þótt ég viti lítið um lögfræði efast ég um að dómstólar geti byggt á niðurstöðu embættisins. Hver gætir réttar míns eiginlega? Ég get tekið undir margt með Árna sem upplifir sársaukafull mannréttindabrot af hálfu embættisins því sjálf upplifi ég þetta sem ofbeldi sem allt heilbrigðiskerfið stundar, lítilsvirðandi meðferð mála sem verður að breyta. Reynsla mín af samskiptum við EL, stjórnendur LSH, ráðuneytið og samtöl við aðra þolendur mistaka segja mér að það kostar blóð, svita og tár að ná fram rétti sínum. Þarna standa allir þétt saman og helgislepjan er óhugguleg. Nú er tími til að hlusta og horfa með hjartanu og gera breytingar til hagsbóta fyrir alla. Ég þakka landlækni fyrir upplýsingarnar og held áfram létt í spori inn í nýja árið þar sem þolendur mistaka munu sameinast um uppbyggilega umræðu og umbætur fyrir landsmenn alla. Ég býð spennt eftir svari landlæknis við öðrum erindum mínum. Við getum umborið mistök en ekki lítilsvirðingu og áhugaleysi fyrir því að gera betur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar