Háhýsi bönnuð í miðborginni kóp skrifar 30. maí 2013 07:00 Samkvæmt drögum að aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 verður algjörlega bannað að reisa hærri hús en fimm hæða á svæðinu innan Hringbrautar. Það markast af Skúlagötu, Snorrabraut, Hringbraut og Ánanaustum. fréttablaðið/anton
Fortakslaust bann verður sett á byggingu háhýsa á svæðinu innan Hringbrautar í Reykjavík, samkvæmt nýju aðalskipulagi borgarinnar. Hús þar mega ekki vera hærri en fimm hæðir. Þá verður hverfisvernd sett á svæðið í því skyni að vernda einkenni þess. Drög að aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 til 2030 verða kynnt í borgarráði í dag. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að með því verði staðfest að Reykjavík verði ekki háhýsaborg. Umrædd hverfisvernd slái nýjan tón í húsverndarmálum. „Húsvernd í Reykjavík, og kannski á Íslandi almennt, var lengi vel kannski fyrst og fremst vernd á einstökum húsum, byggðum á tilteknum tíma eða teiknuðum af tilteknum arkítekt. Þarna erum við að vernda heilt svæði vegna einkenna þess. Ekki bara einstök hús, heldur líka borgarmyndina, götumyndina og svo svipmótið.“ Lögð verður áhersla á að uppbygging sem þegar hefur verið leyfð og á þeim svæðum sem til séu í eldra skipulagi, sé í góðu samspili við það sem fyrir er. „Það er hins vegar alveg fortakslaust að í þessu felst að raska ekki því sögulega gatnaskipulagi sem þarna er, því hvernig byggingareitirnir eru, hvernig opnu rýmin eru og lóðaskipan. Við erum að segja að þessi sögulegi kjarni í Reykjavík hafi gildi eins og hann er og við erum að segja að Reykjavík sé ekki háhýsaborg.“ Dagur segir þetta þýða að ekki verði reistar nýjar blokkir eins og í Skuggahverfinu, en þær hafa verið mjög umdeildar. Almennt verði háhýsi ekki heimiluð í borginni nema að ákveðnum kröfum og skilyrðum uppfylltum. Lágreistar byggingar eigi að einkenna Reykjavík.
Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Fleiri fréttir Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent