Meðfylgjandi myndir tók Ása Ottesen í Hörpunni á dögunum þegar Vala Gestsdóttir sýndi lokaprófsverkefni sitt í meistaranámi í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi frá LHÍ sem bar heitið „Heimur Hvelanna".

Um var að ræða tilfinningaþrungið tónverk sem er innblásið af ljóði Þórunnar Erlu Valdimarsdóttur sem nefnsti „Söngur Hvelanna".


Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir var listrænn stjórnandi en búningurinn sem leikkonan Elma Stefanía klæddist sem myndar einnig sviðsmyndina er óður til jarðarinnar og náði Elma að hrífa áhorfendur með sannfærandi leikrænni tjáningu. Fríða María sá um förðun og í sameiningu náðu þær að fanga fallega stund sem vakti mikla hrifningu viðstaddra.


Smelltu á efstu mynd í grein til að skoða allt albúmið.