Það þótti óviðkunnanlegt að örninn dæi út Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. september 2013 10:30 "Örninn er kominn úr þeirri útrýmingarhættu sem hann var í á tímabili. Þó er hann meðal sjaldgæfustu varpfugla landsins,“ segir Kristinn Haukur. Fréttablaðið/Pjetur
Arnarstofninn er stærri nú en nokkru sinni síðan hann var friðaður fyrir einni öld og hefur þrefaldast á þrjátíu til fjörutíu árum. Hann er kominn úr þeirri útrýmingarhættu sem hann var í á tímabili. Þó er örninn meðal sjaldgæfustu varpfugla landsins,“ segir Kristinn Haukur Skarphéðinsson, líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun. Hann skrifaði texta í ritið Haförninn sem er nýkomið út hjá Fuglavernd. Tilefni útgáfunnar eru tvö merkisafmæli. Fuglavernd er 50 ára á árinu og 9. september eru 100 ár frá því lög um friðun arnarins voru samþykkt á alþingi. „Þetta voru tímamótalög,“ segir Kristinn. „Þarna vorum við Íslendingar rétt búnir að fá heimastjórn, þó vorum við fyrsta þjóð í heiminum sem friðaði örninn. Það liðu tíu ár þar til Norðurlandaþjóðirnar og Þjóðverjar gerðu slíkt hið sama þótt arnarstofninn væri í miklum vanda þar.“ Hann rifjar upp að sama þing og friðaði örninn á Íslandi hafi líka samþykkt að leyfa konum að kjósa. „Menn voru í stuði þetta sumar, 1913,“ segir hann glaðlega. Kristinn tekur fram að lögin hafi ekki tekið gildi fyrr en 1. janúar 1914 og áfram hafi fækkað í arnarstofninum næstu áratugi á eftir, enda hafi menn virt lögin misjafnlega. En hverjir voru helstu málsvarar konungs fuglanna? „Það voru sterkir einstaklingar eins og danskur verslunarstjóri á Eyrarbakka, Peter Nilsen. Bjarni Sæmundsson dýrafræðingur var bandamaður hans. Einnig má nefna Jón Jónatansson, ritstjóra Suðurlands. Þeir voru með einföld rök, þeim fannst „óviðkunnanlegt“ ef örninn dæi út. Stuðningur við verndunarlögin fór heldur ekki eftir hagsmunum eða byggðarlögum. Til dæmis var séra Sigurður Stefánsson í Vigur, sem var öflugur talsmaður æðarbænda, hlynntur þeim. Verndunin var lífsviðhorf sem endurspeglaði ekkert við hvað menn voru að fást.“ Þegar Fuglavernd var stofnuð fyrir hálfri öld var verið að herða eiturútburð fyrir refi, að sögn Kristins og þótt bannað væri að drepa örninn þá drapst hann af eitri. „Fyrsta baráttumál Fuglaverndar var að fá Alþingi til að banna eiturútburð. Það var næsta stóra skrefið. Eftir það fór stofninn að rétta úr kútnum og hefur verið á uppleið til dagsins í dag.“ Kristinn segir búsvæði arnarins þó enn að mestu bundin við Breiðafjörð, Vestfirði og Vesturland en hann hafi verið varpfugl um allt land, meira að segja þegar hann var friðaður fyrir hundrað árum, þeim sessi sé hann ekki búinn að ná þótt stofninn sé kannski stærri. „En örninn sést í öllum landshlutum,“ tekur hann fram, „og mun örugglega fara að verpa þar þegar tímar líða.“
Menning Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fleiri fréttir Góðir straumar á Straumi Fjórðungur ekki með bókasafnskort Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Hlátrasköll hjá heitum hönnuðum Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sjá meira