Háskólanum gert að rétta hlut nemanda Samúel Karl Ólason skrifar 14. október 2013 07:00 María Rut Kristinsdóttir formaður stúdentaráðs segir það gott að nemendur kanni rétt sinn. Mynd/Arnþór
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að 15 prósenta álag á skrásetningargjald í Háskóla Íslands, sé það greitt eftir eindaga, sé ekki í samræmi við lög um opinbera Háskóla. Mál þetta barst umboðsmanni árið 2011, eftir að nemandi kvartaði til hans yfir því að álag þetta var lagt á vegna þess að skrásetningargjald var greitt einum degi eftir eindaga. Eins segir umboðsmaður að ekki sé nægjanlegt að í reglum fyrir Háskólann komi aðeins fram að háskólaráð staðfesti nánar reglur er lúta að skráningargjaldi og þær séu ekki birtar í B-deild Stjórnartíðinda. Umboðsmaður Alþingis beinir því þeim tilmælum til HÍ að rétta hlut nemandans. María Rut Kristinsdóttir formaður stúdentaráðs segir ráðið ekki hafa tekið afstöðu til málsins. „Þetta sýnir enn og aftur að það er gott þegar stúdentar kanna rétt sinn, því margir þeirra átta sig ef til vill ekki á lagaumgjörð Háskólans. Það var flott hjá þessum nemanda að gera það og fá þessa niðurstöðu. Við í stúdentaráði munum fylgja því eftir að Háskólinn muni ekki gera þetta aftur,“ segir María. Til stendur að hækka skrásetningargjöld í HÍ um 15 þúsund krónur annað árið í röð, svo það verði 75 þúsund krónur, og á það að skila 140 milljónum króna til Háskólans. María Rut segir þó ljóst að einungis 39 milljónir muni skila sér til skólans og afgangurinn muni fara í að mæta niðurskurði. „Ég sem stúdent gæti sætt mig við að greiða 75 þúsund krónur fyrir árið ef ég vissi að það myndi auka gæði námsins, en það er mjög fúlt að nemendur þurfi að greiða fyrir niðurskurðinn.“
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira