Foreldrar veri fyrirmynd barna á íþróttaviðburðum Árni Þór Jónsson skrifar 16. mars 2013 06:00 Af hverju vilja foreldrar hafa börnin sín í íþróttum? Er það út af því að þeir náðu ekki sjálfir að uppfylla íþróttadrauma sína eða er það út af því þeir vilja að barnið þeirra sé í góðum félagsskap og sé að gera það sem það hefur gaman af? Hvort sem svarið er „já“ eða „nei“ við þessum spurningum þá þurfum við alltaf að sýna góðan stuðning og jákvæða fyrirmynd, því eins og flestir vita þá lærir barnið mikið af hegðun foreldra. Þótt foreldrar séu ekki inni á vellinum þá ber þeim skylda að sýna góðan íþróttaanda líkt og leikmenn inni á vellinum. Vona ég því að foreldrar opni augun við lestur á þessari grein. Börn á ungum aldri geta verið mjög viðkvæm fyrir athugasemdum og þarf því oftast að passa sig á hvað maður segir við þau, og ekki síður á íþróttaviðburðum. Foreldrar og aðrir áhorfendur verða að muna að þeir eru stuðningsmenn, fólk sem styður liðið sitt áfram með uppbyggjandi athugasemdum hvernig sem gengur. Þeir eiga ekki að hrópa inn á völlinn niðurlægjandi athugasemdir í garð andstæðinganna, þar sem þetta er ekki atburður upp á líf og dauða, heldur eru þetta börn sem hafa gaman af íþróttinni og þurfa sem mestan stuðning svo þau missi ekki áhugann á íþróttinni. Neikvæðar athugasemdir foreldra geta haft áhrif á íþróttaiðkun barnanna, t.d. börn gætu litið á leikinn of alvarlegum augum og gleymt að markmið leiksins er að hafa gaman. Svo virðist sem þetta sé eitt af vandamálum íþróttafélaga og vantar kannski að upplýsa foreldra betur hjá hverju og einu íþróttafélagi hvernig skuli hegða sér á íþróttaviðburðum hjá börnum. Ég sjálfur hef farið á fjölda marga yngri flokka leiki bæði í körfubolta og í fótbolta og hef ég orðið vitni af því að foreldrar eru ekki lengur að hvetja liðið sitt áfram heldur eru foreldrar beggja liða farnir að keppa hverjir við aðra í stúkunni, og get ég sagt að það voru ekki falleg orð sem ég heyrði. Ég tel að íþróttafélög geti upplýst foreldra um þetta vandamál með ýmsum aðferðum. Íþróttafélögin gætu búið til bækling um hvað fyrirmynd er og hvað hvatning er mikilvæg fyrir börnin, hvernig foreldrar eiga að hegða sér á leikjum og leggja áherslu á það að börnin eigi að hafa gaman af íþróttinni. Þjálfari gæti sent foreldrum póst rétt fyrir mót þar sem hann minnir þá á að hvetja börnin eða liðið áfram og reyna að forðast ágreining við aðra foreldra úr öðrum liðum. Að lokum vil ég minna á máltækið: „Það læra börnin sem fyrir þeim er haft.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar