Vignir: Ljósunum að kenna að ég klikka Sigurður Elvar Þórólfsson í Sevilla skrifar 14. janúar 2013 08:00 Vignir Svavarsson er í aðalhlutverki í varnarleik Íslands. Hann er einnig drjúgur í hraðaupphlaupum. Mynd/Vilhelm
Vignir Svavarsson lék vel í 38-22 sigri Íslands gegn Síle, en varnartröllið skoraði alls 4 mörk úr alls 6 tilraunum – öll nema eitt úr hraðaupphlaupum. Vignir átti reyndar sendingu sem varð næstum því að marki en boltinn hafnaði í stönginni. „Þetta var sending – ekki skot, bara svo það sé á hreinu," sagði Vignir. „Ungu strákarnir stóðu sig vel, vissulega gerðu þeir mistök eins og við allir, þeir héldu uppi hraðanum í leiknum og það var gaman að fylgjast með þeim. Við þurfum að hvíla okkar lykilmenn í svona löngu móti, og þetta var öruggur sigur og skynsamlega leikið," sagði Vignir, en hann er með fína skýringu á því af hverju hann á það til að klikka úr opnum færum eftir hraðaupphlaup. „Yfirleitt er það lýsingin sem blindar mann eða að flass frá ljósmyndara hefur þessi áhrif. Ljósin trufla þegar ég klikka í dauðafæri – það er bara þannig. Ég er með tvær útgáfur sem ég nota, skrúfa boltann í gólfið eða dúndra bara, og þegar boltinn fer í markið þá er sú útgáfa sú besta," sagði Vignir í léttum tón. Ásgeir Örn Hallgrímsson svaraði fyrir sig á vellinum en hann var alls ekki sáttur við sinn leik gegn Rússum þar sem hann skoraði aðeins 1 mark. Ásgeir var virkilega ákveðinn gegn Síle og skoraði alls 4 mörk úr 5 tilraunum og var valinn maður leiksins af dómnefnd í leikslok. „Hægri vængurinn er mættur aftur," sagði Ásgeir Örn. „Mér fannst mikilvægast að við unnum en ég var staðráðinn í því að gera betur en gegn Rússum án þess að vera of eigingjarn. Ungu strákarnir bættu í þegar þeir komu inn – og það þarf að leyfa þessum ungu strákum að sprikla af og til. Makedóníuleikurinn er næst á dagskrá og við þurfum að laga ýmislegt hjá okkur til þess að bæta leik okkar enn frekar," sagði Ásgeir Örn.
Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Fyrrverandi þjálfari Liverpool látinn Enski boltinn „Hugmyndin var að verjast með fimm menn“ Enski boltinn Elskar að spila fyrir Moyes sem hefur endurvakið feril hans Enski boltinn Hvort liðið ætlar að halda í við Liverpool? Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir á Englandi og í Bestu, Formúla 1, Red Zone og margt fleira Sport Amorim lifir þökk sé rauða spjaldi Sánchez Enski boltinn Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Sjáðu Berglindi Björgu verða markahæsta ásamt öllum hinum mörkum dagsins Íslenski boltinn Aldarfjórðungur síðan Mourinho hóf ferilinn með Benfica Fótbolti Fleiri fréttir Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Sjá meira