Speglarnir eru bilaðir Bjarki Ármannsson skrifar 23. desember 2013 10:30 Frá vinstri; Hallfríður, Sigurlaug, Guðmundur, Þorvaldur og Auður. Mynd/Guðmundur Einar
Glöggir Reykvíkingar hafa ef til vill tekið eftir dularfullum límmiðum sem birst hafa á speglum bara og kaffihúsa miðbæjarins undanfarna daga. Límmiðarnir bera skilaboðin „ATH. – Spegillinn er bilaður.“ Þeir eru verk sviðslistahópsins Spegilbrots, sem vill vekja fólk til umhugsunar í aðdraganda fyrstu leiksýningar hópsins í mars á næsta ári. „Kannski fer einhver að pæla: Bíddu, af hverju er spegillinn bilaður?“ segir Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, einn meðlima Spegilbrots. Hún segir að í væntanlegri sýningu hópsins, sem hún kallar „mega-nútímaleikhús“, verði fjallað um spegla frá alls konar sjónarhornum. „Það sem við viljum gera er að fá fólk til að hugsa: Hvernig væri heimurinn án spegla?“ segir Hallfríður. Hún segir það hafa vakið áhuga hópsins hversu oft á dag við notumst við spegla, jafnvel ómeðvitað. „Líka bara hvernig við speglum okkur í öðru fólki og hvernig við sjáum okkur sjálf.“Eitt hinna óvenjulegu skilaboða.Þetta verður allt gert að umfjöllunarefni samnefndrar sýningar Spegilbrots, sem hlaut frumkvöðlastyrk Evrópu unga fólksins. Frumsýningardagur og sýningarstaður ráðast á næstu dögum, en Hallfríður bendir áhugasömum á að fylgjast með vinnuferli hópsins á facebook.com/spegilbrot. Hún lofar leikriti með óhefðbundnu sniði. Ásamt Hallfríði er hópurinn Spegilbrot skipaður þeim Sigurlaugu Söru Gunnarsdóttur, Guðmundi Felixsyni, Auði Friðriksdóttur og Þorvaldi Sigurbirni Helgasyni. Hallveig Kristín Eiríksdóttir gerir leikmyndina, sem er útskriftarverkefni hennar frá TAI-skólanum í Madrid. Áður en að sýningu kemur stendur þó til að dreifa límmiðunum áfram, til að vekja athygli mannskarans í miðbænum. „Ég hlakka mjög til að heyra viðbrögð eftir helgina,“ segir Hallfríður um skilaboðin. „Þetta er ábyggilega frekar fyndið, þegar fólk er komið í glas.“
Mest lesið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Það er komið gó hjá Bó Lífið Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Svala minnist pabba síns Lífið Tekur við af dóttur kærastans Lífið Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Tónlist Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Bíó og sjónvarp Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Lífið Fleiri fréttir Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Sjá meira
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist