Að vera sjálfboðaliði er sjálfselska! Magnea Sverrisdóttir skrifar 5. desember 2013 06:00 Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða haldinn hátíðlegur. Það er fátt dýrmætara í þjóðfélaginu en fólk sem gefur af tíma sínum til hinna ýmsu málefna. Því hefur verið haldið fram að sjálfboðastarf auki lífsgæði fólks fyrir utan þau jákvæðu áhrif sem störf sjálfboðaliða hafa á samfélagið. Það eru forréttindi að fá að tilheyra samfélagi eða hópi fólks þar sem kraftar hvers og eins fá að njóta sín. KFUM og KFUK á Íslandi er 114 ára gömul sjálfboðaliðahreyfing sem stendur að faglegu barna- og æskulýðsstarfi á kristilegum grunni. Það sem hefur einkennt starf KFUM og KFUK í gegnum tíðina eru sameiginleg markmið og ómæld vinna sjálfboðaliða á öllum aldri. Í KFUM og KFUK á Íslandi starfa u.þ.b. 500 sjálfboðaliðar í stjórnum, ráðum, nefndum, barnastarfi, fullorðinsstarfi, leikskóla og í sumarbúðum. KFUM og KFUK væri ekki það sem það er í dag nema vegna þeirra kynslóða af fólki sem gefið hafa vinnu sína og þannig sýnt umhyggju sína í verki. Samfélagið hefur á síðustu árum í auknum mæli metið reynslu sjálfboðaliða. Til marks um það má nefna að sjálfboðaliðar í barna- og æskulýðsstarfi KFUM og KFUK hafa fengið metnar einingar í nokkrum framhaldsskólum, rétt eins og þeir sem stunda tónlistar- og listnám. Það að vera sjálfboðaliði er í raun sjálfselska. Með því á ég við að þegar við gefum af tíma okkar með gleði erum við ekki bara að láta gott af okkur leiða heldur líka byggja okkur sjálf upp. Með því bætum við lífsgæði okkar. Það er ekki svo að skilja að einstaklingar sem gefa vinnu sína séu á einhvern hátt betri en aðrir. Þeir eru í sjálfboðastarfi vegna þess að það bætir einhverju jákvæðu í líf þeirra, annars væru þeir ekki að gefa af tíma sínum í hverri viku. Um leið og KFUM og KFUK á Íslandi þakka öllum sínum sjálfboðaliðum fyrir vel unnin störf, eru öllum landsmönnum sem sinna sjálfboðastarfi í kirkjum, hjálparsveitum og hinum fjölmörgu félagasamtökum færðar þakkir fyrir dýrmæt störf landi og þjóð til heilla. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Skoðun Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Sjá meira
Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða haldinn hátíðlegur. Það er fátt dýrmætara í þjóðfélaginu en fólk sem gefur af tíma sínum til hinna ýmsu málefna. Því hefur verið haldið fram að sjálfboðastarf auki lífsgæði fólks fyrir utan þau jákvæðu áhrif sem störf sjálfboðaliða hafa á samfélagið. Það eru forréttindi að fá að tilheyra samfélagi eða hópi fólks þar sem kraftar hvers og eins fá að njóta sín. KFUM og KFUK á Íslandi er 114 ára gömul sjálfboðaliðahreyfing sem stendur að faglegu barna- og æskulýðsstarfi á kristilegum grunni. Það sem hefur einkennt starf KFUM og KFUK í gegnum tíðina eru sameiginleg markmið og ómæld vinna sjálfboðaliða á öllum aldri. Í KFUM og KFUK á Íslandi starfa u.þ.b. 500 sjálfboðaliðar í stjórnum, ráðum, nefndum, barnastarfi, fullorðinsstarfi, leikskóla og í sumarbúðum. KFUM og KFUK væri ekki það sem það er í dag nema vegna þeirra kynslóða af fólki sem gefið hafa vinnu sína og þannig sýnt umhyggju sína í verki. Samfélagið hefur á síðustu árum í auknum mæli metið reynslu sjálfboðaliða. Til marks um það má nefna að sjálfboðaliðar í barna- og æskulýðsstarfi KFUM og KFUK hafa fengið metnar einingar í nokkrum framhaldsskólum, rétt eins og þeir sem stunda tónlistar- og listnám. Það að vera sjálfboðaliði er í raun sjálfselska. Með því á ég við að þegar við gefum af tíma okkar með gleði erum við ekki bara að láta gott af okkur leiða heldur líka byggja okkur sjálf upp. Með því bætum við lífsgæði okkar. Það er ekki svo að skilja að einstaklingar sem gefa vinnu sína séu á einhvern hátt betri en aðrir. Þeir eru í sjálfboðastarfi vegna þess að það bætir einhverju jákvæðu í líf þeirra, annars væru þeir ekki að gefa af tíma sínum í hverri viku. Um leið og KFUM og KFUK á Íslandi þakka öllum sínum sjálfboðaliðum fyrir vel unnin störf, eru öllum landsmönnum sem sinna sjálfboðastarfi í kirkjum, hjálparsveitum og hinum fjölmörgu félagasamtökum færðar þakkir fyrir dýrmæt störf landi og þjóð til heilla.
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar