Raunhækkun framleiðslustyrkja sögð 30 milljónir Óli Kristján Ármannsson skrifar 3. október 2013 07:00 Beinar greiðslur til bænda nema ekki nema hluta af styrkjum vegna búvöruframleiðslu, eða 69,4 prósentum. Mjólkurframleiðendur frá beinar greiðslur upp á tæpa 5,5 milljarða, sauðfjárframleiðendur tæpa 2,5 milljarða og grænmetisbændur 269 milljónir. Fréttablaðið/Pjetur
Kostnaður við framleiðslustyrki í landbúnaði og vegna rekstrar- og þjónustusamnings við Bændasamtök Íslands nemur rúmum 12,4 milljörðum króna samkvæmt fjárlögum næsta árs. Upphæðin er bróðurpartur skuldbindandi samninga atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, eða 96,7 prósent af heildarkostnaði upp á rúma 12,8 milljarða króna. Í skýringum við frumvarpið kemur fram að þótt útgjöld vegna styrkja til búvöruframleiðslu, það er mjólkur-, sauðfjár- og grænmetisframleiðslu, aukist um 376 milljónir króna á milli ára, þá hækki heildarfjárveiting til málaflokksins bara um 30 milljónir frá gildandi fjárlögum þegar frá séu taldar almennar verðlagsbreytingar. Þær nemi 346 milljónum króna. Breytt framlög eru sögð grundvallast á breytingum sem gerðar voru á búvörusamningum árið 2009. Þá var ákveðið að framlög vegna búvörusamninga yrðu eingöngu hækkuð til samræmis við áætlaðar verðlagshækkanir milli ára. „Verði verðlagsbreytingar aðrar en gert er ráð fyrir í frumvarpinu skal mismunurinn leiðréttur í fjárlögum næsta árs.“ Vegna þessa hækki nú greiðslur vegna mjólkurframleiðslu um 189 milljónir króna, greiðslur vegna sauðfjárframleiðslu um 140 milljónir og greiðslur vegna grænmetisframleiðslu um 17 milljónir króna. Milljónirnar þrjátíu sem framlögin hækka til viðbótar við útreiknaðar verðlagsbreytingar eru hækkun á greiðslum vegna grænmetisframleiðslu. „Skýrist það af auknum stuðningi við niðurgreiðslur á lýsingu í ylrækt,“ segir í fjárlagafrumvarpinu. 491,1 milljóna króna fjárveiting til Bændasamtaka Íslands er sögð jafngilda 7,3 milljóna króna raunlækkun frá yfirstandandi fjárlögum. Lækkunin er sögð skýrast af lækkuðu framlagi til ráðgjafaþjónustu og búfjárræktar og lækkunar vegna almennrar niðurskurðarkröfu í útgjöldum ríkisins. Undir þjónustusamning ríkisins við Bændasamtökin fellur líka Framleiðnisjóður landbúnaðarins, en hlutfallslega hækka framlög til hans langmest af öllum útgjaldaliðum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, eða um tuttugu prósent frá Fjárlögum 2013. Útgjöld vegna sjóðsins fara úr sjötíu milljónum króna í 84 milljónir króna. „Annars vegar er lögð til fimmtán milljóna króna hækkun í samræmi við búnaðarlagasamning frá 28. september 2012. Hins vegar er gert ráð fyrir 1,0 milljóna króna lækkun vegna hagræðingar í ríkisútgjöldum.“Tölfræðiframlag framlengt um ár Í umfjöllun um fjárheimildir forsætisráðuneytis í Fjárlagafrumvarpinu 2014 kemur fram að framlengja eigi um eitt ár tímabundið framlag vegna landbúnaðartölfræði. Framlagið var veitt til eins árs á fjárlögum 2013. „Verkefnið hefur notið IPA-styrks frá Evrópusambandinu og áætlað er að lokagreiðsla komi til útborgunar í ár,“ segir í skýringum fjárlagafrumvarpsins. Síðan er gert ráð fyrir að framlagið lækki um fimm milljónir króna og verði gert að varanlegu 35 milljóna króna framlagi í fjárlögum 2015 til starfrækslu verkefnisins í samræmi við fyrri áætlanir.
Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Erlent Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Erlent Fleiri fréttir Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Sjá meira