Umbun Ólafur Bjarkason skrifar 20. september 2013 06:00 Hvað vekur áhuga á tilteknu starfi? Ýmislegt hefur áhrif þar á. Til dæmis innri hvatar eins og persónulegur metnaður og áhugasvið viðkomandi og svo ytri hvatar eins og laun og sú umbun sem starfið hefur í för með sér. Inn í þetta spila líka þættir eins og vinnuumhverfið í starfinu. Í leikskólum virðist fækka sífellt í röðum þeirra sem hafa leikskólastarf að ævistarfi og einn af áhrifavöldunum er án efa launakjörin sem í boði eru. Annað sem hefur áhrif á þessa þróun er undirmönnun og álag í starfinu. Álag á vinnustaðnum eykst til muna þegar erfiðlega gengur að ráða inn og þegar álagið eykst verða fleiri fjarverandi vegna veikinda. Þar af leiðandi eykst álagið á þá sem standa vaktina enn þá meira. Ég trúi samt að þeir sem hafa valið leikskólakennslu sem ævistarf hafi gaman að því að vinna með börnum og séu flestir með brennandi áhuga á starfinu. Í svona aðstæðum getur álagið þó verið mikið og hættan til staðar að fólk brenni út í starfi. Mörg störf eru í boði í leikskólum og þar á meðal nokkrar stöður deildarstjóra. Það gengur hægt að ráða í þessar stöður og ég er nokkuð viss um að hlutfall leikskólakennara í hópi umsækjenda sé lágt. Í umræðunni er einnig fækkun umsækjenda í nám í leikskólakennarafræðum á síðustu árum. Staðan er því að verða alvarleg.Gríðarlega stoltur Fyrir tíu árum síðan tók ég ákvörðun um að gerast leikskólakennari. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun og er gríðarlega stoltur af mínu starfi. Ég sé ekki eftir því þó svo að ég þurfi að vinna tvær aukavinnur til að fjölskyldan nái endum saman. Ég sé ekki eftir því þó að álagið sé oft með ólíkindum og ég sé ekki eftir því þó að ég sé oft einn karl á meðal kvenna. Stundum hef ég hugsað um að skipta um starfsvettvang, fara til dæmis að vinna í banka þar sem launaumslagið er þykkara. Þar eru alls kyns bónusar í boði og ég gæti fengið hlut í bankanum að gjöf frá ríkinu með öllu tilheyrandi. En metnaður minn liggur ekki þar. Mín umbun er í öðru formi. Ég fæ að kynnast fullt af flottum einstaklingum og hjálpa þeim að stíga sín fyrstu skref í skólakerfinu. Mér er umbunað með því að fá lítil faðmlög þegar ég mæti í vinnuna, ég tekst á við fjölbreytt verkefni á hverjum degi og ég er stoltur af starfinu í lok dags. Ég fæ líka að taka þátt í að móta framúrskarandi leikskólastarf. Það er gaman að vinna í leikskóla, það er líka krefjandi og oft erfitt. En um leið er starfið gefandi, starfsandinn góður og börnin eru frábær. Samskiptin við þau eru umbunin og það er út af þeim sem fólk heldur áfram að berjast þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Það mætti samt alveg vera aðeins meiri umbun í formi launa og ég vænti þess að þeir sem hafa ákvörðunarvald um þennan málaflokk geri sér grein fyrir hvernig málin standa. Það er nefnilega alveg fínt að vera með góða hjólastíga í borginni okkar en ég held að flestir séu sammála um að það sé enn betra að vera með vel mannaða leikskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar