Lífið

Óskar eftir blóðgjöf frá aðdáendum.

Sara McMahon skrifar
Norski leikstjórinn Tommy Wirkola óskar eftir blóðgjöf.
Norski leikstjórinn Tommy Wirkola óskar eftir blóðgjöf. Nordicphotos/getty
Norski leikstjórinn Tommy Wirkola hefur sent frá sér myndband á Vimeo þar sem hann óskar eftir blóðgjöfum frá aðdáendum sínum. Wirkola er staddur á Íslandi við tökur á kvikmyndinni Dead Snow: Red VS Dead, en hún er framhald hrollvekjunnar Dead Snow sem fjallaði um nasistauppvakninga.

Wirkola vill þó ekki raunverulegt blóð aðdáenda sinna heldur einungis peningagjafir fyrir gerviblóði sem hann hyggst nota í lokaatriði myndarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×