Hamingjusöm á kúpunni (415) Hulda Bjarnadóttir og framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu. skrifa 11. september 2013 07:00 Mér tekst aldrei að vera neikvæð eða svartsýn lengur en í nokkrar mínútur. Og varla það. En stundum finnst mér ég ekki með inneign fyrir endalausri bjartsýni og gleði og þá reyni ég að vera sú svartsýna sem sér hið margumtalaða hálftóma glas. Og hvenær gerist það? Það er þegar ég heyri af gamla fólkinu okkar eða öryrkjum landsins sem dregur fram lífið með tíköllum nánast og er algjörlega háð ættingjum og vinum um framfærslu. Það er þegar talað er um skuldastöðu ríkisins og frasar um það að við höfum ekki efni á að reka okkar eigið velferðarsamfélag þrátt fyrir að greiða eina hæstu skatta í veröldinni. Það er bara eitthvað sem stemmir ekki í slíkri formúlu og þá er ástæða til furða sig á þessu öllu og taka smá svartsýniskast. Það er nú aldeilis illa komið fyrir okkur hér á þessari blessaðri eyju og allt það. Samhengi hlutannaSvo lít ég í kringum mig þegar ég hætti í svartsýniskastinu og sé fallega muni, hrein rými og heilbrigt og skynsamlegt fólk sem fer inn í daginn með það fyrir augum að gera sitt besta. Svo fer ég heim til mín í hreint eldhús og útbý ferska máltíð sem tryggir að börnin mín lamist ekki af næringarskorti. Svo lendi ég í því að fara með barnið mitt í sjúkrabíl upp á spítala og legg ekki út krónu fyrir það heldur nýti skattféð í það sinn. Svo geng ég út í búð og heyri dirrindí en ekki skothvelli eða í grátandi fólki úti á götu. Svo tek ég mér snjallsíma í hönd og les um stríðs- og óeirðafréttir úti í heimi í stað þess að upplifa þær. Svo umgengst ég vin sem er að takast á við illvígan sjúkdóm en getur samt hlegið og séð það fallega og fyndna í lífinu. Svo svæfi ég börnin mín án þess að þurfa að telja í þau kjark að sofna vegna hræðslunnar við árás um miðja nótt. Sjálf leggst ég á koddann án þess að vopnbúast. Efst á hamingjulistanumFyrir þetta erum við Íslendingar sennilega þakklátastir og geri ég ráð fyrir því að þessir þættir skili okkur í 9. sæti yfir hamingjusömustu þjóðir veraldar skv. World Happiness Report frá Columbia University's Earth Institute. Við erum því, þrátt fyrir allt svartsýnistal, ein af hamingjusömustu þjóðum veraldar, hvort sem þessum neikvæðustu og svartsýnustu líkar það betur eða verr. Við lendum í 9. sæti af 156 þjóðum, rétt á eftir Kanadamönnum sem skipa 6. sæti. Við skákum þjóðum svo sem Ástralíu (10), Bandaríkjunum (17), Bretlandi (22), Þýskalandi (26), Japan (43), Rússlandi (68) og Kína (93). Ég leyfi mér því að fullyrða að íslenska þjóðin sé hamingjusöm þjóð á kúpunni. Ég get ekki séð að það sé svo slæmt. En sannaðu til það mun einhver bölva mér fyrir að sjá ekki hlutina í réttu ljósi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar