Vegna bilunar þarf að loka fyrir… Inga Dóra Hrólfsdóttir skrifar 6. september 2013 06:00 Nýlega fengu liðlega 2.000 íbúar í Salahverfi í Kópavogi samhljóða SMS-skeyti: Vegna bilunar þarf að loka fyrir heita vatnið þriðjudaginn 27. ágúst 2013 frá kl. 09.00 til kl. 17.00 í eftirfarandi götum… Skeytin áttu uppruna sinn hjá Orkuveitunni, sem nú er farin að beita þessari samskiptaleið til að láta íbúa vita af því þegar vatnið fer eða rafmagnið og vara við hættum sem geta fylgt því. Langvarasamast er þegar það verður kaldavatnslaust, sem gerist sem betur fer sjaldan. Þá kemur bara heitt vatn úr blöndunartækjunum. Ef íbúar hafa ekki sett upp varmaskipti til að draga úr vatnshita í krönum, getur t.d. börnum verið talsverð hætta búin. Þess vegna er svo mikilvægt að koma boðum til íbúa. Um langt árabil hafa tilkynningar verið bornar í hús þegar loka hefur þurft fyrir vegna tenginga eða viðhalds. Þessi leið virkar ekki sem skyldi. Við fáum sífellt fleiri kvartanir um að fólk hafi ekki séð tilkynningarnar og alla jafna vegna þess að þær hafa drukknað í öðrum pósti við útidyrnar. Við hjá Orkuveitunni höfum líka notið velvilja hjá fjölmiðlum, sem birt hafa í fréttatímum eða á vefjum sínum tilkynningar um bilanir og sérstaklega þær sem skapað geta almannahættu. Fyrir það erum við afar þakklát.Markvissari leiðir Með breyttri samskiptatækni bjóðast markvissari leiðir. Á Íslandi eru skráð fleiri en 400 þúsund farsímanúmer. Landsmenn yfir níu ára aldri eru hins vegar um 277 þúsund. Það er því nánast hver maður með slíkt tæki og sumir fleiri en eitt. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu mikið fljótlegra það er að koma boðum til íbúa með smáskilaboðum en að bera út en til þess að þessi leið virki þurfa símanúmer að vera skráð á heimilisfang. Á Bæjarhálsi 1, þar sem höfuðstöðvar Orkuveitunnar eru og tvö önnur fyrirtæki með skrifstofur, eru skráð nokkur hundruð farsímanúmer. Það eru númer í eigu fyrirtækjanna en í notkun hjá starfsfólki. Ef bilun yrði á Bæjarhálsi, á mínum vinnustað, þá fengi ég SMS-skilaboð um það en ekki ef bilun verður í hverfinu sem ég bý í vegna þess að símanúmerið er ekki skráð á heimili mitt. Það sem ég hef þá gert er að skrá farsímanúmerið, sem ég hef til afnota, á viðskiptavinasíðuna mína á vef Orkuveitunnar, www.orkanmin.is. Þá fæ ég SMS frá fyrirtækinu ef bilun verður í Staðahverfinu, þar sem ég bý. Þar með get ég varað fjölskyldumeðlimi við hugsanlegri hættu nú eða bent þeim á að skella sér í sund ef baðferð var fyrirhuguð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar