Eignir heimilanna aukast meira en skuldir Brjánn Jónasson skrifar 25. júlí 2013 06:15 Um 26 þúsund fjölskyldur skulda ekkert í fasteign sinni en 68 þúsund fjölskyldur til viðbótar skulda að meðaltali 17 milljónir í sínum eignum. Fréttablaðið/Anton
Skuldir íslenskra heimila jukust um rúmlega 1,5 prósent á síðasta ári og skuldar meðalheimilið nú um 12 milljónir króna. Eignirnar jukust þó meira, um 6,9 prósent samkvæmt samantekt Ríkisskattstjóra. Íslensk heimili skulduðu samtals 1.785 milljarða króna í árslok 2012 samanborið við 1.759 milljarða í byrjun þess árs. Um 68 þúsund fjölskyldur af þeim 94 þúsundum sem telja fram skulduðu í húsnæði sínu en 26 þúsund skulda ekkert í húsnæði sínu. Heildarskuldir heimilanna vegna húsnæðisskulda voru 1.159 milljarðar í lok árs 2012. Það þýðir að þær fjölskyldur sem á annað borð skulda vegna húsnæðiskaupa skulda um 17 milljónir að meðaltali. Eignir heimilanna námu 3.861 milljarði króna í lok síðasta árs og höfðu þá aukist um 6,9 prósent á árinu. Aukningin er borin uppi að mestu af hækkandi verðmæti fasteigna. Verðmæti fasteigna, sem er ríflega tveir þriðju af eignum heimilanna, jókst um 9 prósent á árinu 2012 en verðmæti annarra eigna um 2,4 prósent.Fjármagnstekjuskattur skilar meiru Einstaklingar greiða 11,7 milljarða króna í fjármagnstekjuskatt vegna ársins 2012, sem er 13,9 prósenta aukning frá síðasta ári. Um 42 þúsund greiddu fjármagnstekjuskatt á árinu. Alls greiddu 5.980 aðilar, um 3.100 fjölskyldur, samtals 5,6 milljarða króna í auðlegðarskatt vegna ársins 2012. Það er 0,3 prósenta lækkun frá árinu 2011. Viðbótarauðlegðarskattur var lagður á hlutabréfaeign 4.988 skattgreiðenda, samtals 3,5 milljarðar króna, sem er 44 prósenta aukning milli ára.
Mest lesið Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Sjá meira