Stóra málið! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar 5. júlí 2013 08:00 Rannsóknarskýrsla Alþingis um Íbúðalánasjóð er vissulega svört, um það þarf ekki að deila. Engin ástæða er þó til að fyllast svartsýni um framtíð húsnæðismálanna. Við eigum að læra af skýrslunni og bæta vinnubrögð og stefnumótun. Húsnæðismálin eru eitt mikilvægasta viðfangsefni stjórnmálanna. Öruggt húsnæði er grunnur að velferð fólks um leið og skipan húsnæðismála er eitt stærsta efnahagsmálið. Eðli málsins samkvæmt tekur tíma að gera breytingar á húsnæðiskerfinu. Rannsóknarskýrslan um Íbúðalánasjóð sýnir að breytingar á fjármögnun húsnæðis geta haft alvarlegar afleiðingar ef ekki er hugað að víðtækum áhrifum þeirra í upphafi. Skýrslan sýnir einnig að markviss húsnæðisstefna er nauðsynleg til að tryggja fólki húsnæði af réttri stærð og á réttum stöðum. Nú á Íbúðalánasjóður um 2.200 íbúðir en innan við þriðjungur þeirra er í útleigu. Hinar standa auðar, sumar jafnvel ekki fullbyggðar eða í byggðarlögum þar sem lítil eftirspurn er eftir húsnæði.Gagnleg umræða Þverpólitískur samráðshópur um húsnæðisstefnu skilaði tillögum vorið 2011 og þar skapaðist samstaða um húsnæðisstefnuna. Lögð var áhersla á að innleiða húsnæðisáætlanir í sveitarfélögum, efla upplýsingar um húsnæðismarkaðinn, breyta húsnæðisstuðningi svo eigendum húsnæðis sé ekki gert hærra undir höfði en leigjendum, breyta rekstrarumhverfi húsnæðisfélaga og síðast en ekki síst skapa stöðuga umgjörð um fjármögnun húsnæðis. Á síðustu mánuðum og misserum hafa vinnuhópar verið að skila tillögum um þessa þætti stefnunnar. Nú er mikilvægt að koma þeim í framkvæmd enda mikil eftirspurn eftir húsnæði á viðráðanlegu verði. Við í Samfylkingunni fögnum því að Eygló Harðardóttir, nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, ætlar að skipa verkefnisstjórn um húsnæðismál og samvinnuhóp með henni. Heildstæðar tillögur liggja fyrir í velferðarráðuneytinu frá fyrri ríkisstjórn og rannsóknarskýrslan um Íbúðalánsjóð hefur að geyma mjög gagnlega umræðu. Halda þarf áfram breytingum á Íbúðalánasjóði, ákveða skipan húsnæðislána og innleiða þá metnaðarfullu húsnæðisstefnu sem þverpólitísk sátt ríkir um. Húsnæðismálin eru stóra málið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Rannsóknarskýrsla Alþingis um Íbúðalánasjóð er vissulega svört, um það þarf ekki að deila. Engin ástæða er þó til að fyllast svartsýni um framtíð húsnæðismálanna. Við eigum að læra af skýrslunni og bæta vinnubrögð og stefnumótun. Húsnæðismálin eru eitt mikilvægasta viðfangsefni stjórnmálanna. Öruggt húsnæði er grunnur að velferð fólks um leið og skipan húsnæðismála er eitt stærsta efnahagsmálið. Eðli málsins samkvæmt tekur tíma að gera breytingar á húsnæðiskerfinu. Rannsóknarskýrslan um Íbúðalánasjóð sýnir að breytingar á fjármögnun húsnæðis geta haft alvarlegar afleiðingar ef ekki er hugað að víðtækum áhrifum þeirra í upphafi. Skýrslan sýnir einnig að markviss húsnæðisstefna er nauðsynleg til að tryggja fólki húsnæði af réttri stærð og á réttum stöðum. Nú á Íbúðalánasjóður um 2.200 íbúðir en innan við þriðjungur þeirra er í útleigu. Hinar standa auðar, sumar jafnvel ekki fullbyggðar eða í byggðarlögum þar sem lítil eftirspurn er eftir húsnæði.Gagnleg umræða Þverpólitískur samráðshópur um húsnæðisstefnu skilaði tillögum vorið 2011 og þar skapaðist samstaða um húsnæðisstefnuna. Lögð var áhersla á að innleiða húsnæðisáætlanir í sveitarfélögum, efla upplýsingar um húsnæðismarkaðinn, breyta húsnæðisstuðningi svo eigendum húsnæðis sé ekki gert hærra undir höfði en leigjendum, breyta rekstrarumhverfi húsnæðisfélaga og síðast en ekki síst skapa stöðuga umgjörð um fjármögnun húsnæðis. Á síðustu mánuðum og misserum hafa vinnuhópar verið að skila tillögum um þessa þætti stefnunnar. Nú er mikilvægt að koma þeim í framkvæmd enda mikil eftirspurn eftir húsnæði á viðráðanlegu verði. Við í Samfylkingunni fögnum því að Eygló Harðardóttir, nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, ætlar að skipa verkefnisstjórn um húsnæðismál og samvinnuhóp með henni. Heildstæðar tillögur liggja fyrir í velferðarráðuneytinu frá fyrri ríkisstjórn og rannsóknarskýrslan um Íbúðalánsjóð hefur að geyma mjög gagnlega umræðu. Halda þarf áfram breytingum á Íbúðalánasjóði, ákveða skipan húsnæðislána og innleiða þá metnaðarfullu húsnæðisstefnu sem þverpólitísk sátt ríkir um. Húsnæðismálin eru stóra málið.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar