Karllæg gildi og „mjúk“ mál Eygló Harðardóttir skrifar 14. júní 2013 08:44 Mat okkar á mikilvægi verkefna endurspeglast meðal annars í launakjörum. Nýlega benti ég á mismun á launum formanna í stjórnum á vegum ríkisins og tók dæmi um laun fyrir stjórnarsetu í Fjármálaeftirlitinu (FME) og Tryggingastofnun ríkisins (TR). Ég benti á að allt að tífaldur munur væri á launum þeirra. Ég fór reyndar rangt með upplýsingar um laun stjórnarformanns FME, sem leiðrétti mál mitt í grein í Fréttablaðinu og hafi hann þökk fyrir það. Hann sagði ástæðu hárrar greiðslu þegar hann tók við formennskunni í júní 2011 hafa legið í mikilli vinnu vegna endurreisnar fjármálakerfisins og FME. Hann hefði sjálfur óskað eftir launalækkun haustið 2012 úr 600.000 í 400.000 kr. þar sem starfinu miðaði vel og líklegt var að álag myndi minnka. Þótt leiðréttingunni sé til skila haldið breytir niðurstaðan ekki því að hróplegur munur er enn á launum fyrir stjórnarformennsku hjá FME og TR, þar sem formaðurinn fær ríflega 60 þús. kr. á mánuði. Ég ætla ekki að dæma um hvað er hæfileg greiðsla fyrir formennsku í þessum stjórnum. Fyrst og fremst bendi ég á að sá margfaldi munur sem þarna er á greiðslum vekur furðu og getur ekki byggst á skynsamlegu eða raunhæfu mati á ábyrgð, umfangi verkefna eða mikilvægi þeirra. Ég tel augljóst að hér búi að baki gamaldags og úrelt karllæg viðhorf um hin meintu hörðu fjármál og mjúku velferðarmál.Þessu verður að breyta Stjórnarformaður FME tekur undir með mér um að löngu sé tímabært að við áttum okkur á að velferðarmál eru ekki mjúkur málaflokkur og skrifar: „Stundum kann að eiga við að lækka laun, eins og ég hef gert í tilfelli stjórnarformanns FME, og víða þarf að hækka laun í störfum við velferðarmál.“ Þessu er ég algjörlega sammála og ég geri ráð fyrir að margir deili með okkur þessari skoðun. Fyrir nokkru var lokið við gerð jafnlaunastaðals sem unnið hefur verið að á liðnum árum. Aðgerðahópur á vegum stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins vinnur að innleiðingu staðalsins, sem ég vona að reynist gott tæki til að eyða kynbundnum launamun, breyta viðhorfum og leggja skynsamlegan grunn fyrir réttmætar launaákvarðanir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Uppskrift að lakari samkeppnishæfni fiskeldis Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Sjá meira
Mat okkar á mikilvægi verkefna endurspeglast meðal annars í launakjörum. Nýlega benti ég á mismun á launum formanna í stjórnum á vegum ríkisins og tók dæmi um laun fyrir stjórnarsetu í Fjármálaeftirlitinu (FME) og Tryggingastofnun ríkisins (TR). Ég benti á að allt að tífaldur munur væri á launum þeirra. Ég fór reyndar rangt með upplýsingar um laun stjórnarformanns FME, sem leiðrétti mál mitt í grein í Fréttablaðinu og hafi hann þökk fyrir það. Hann sagði ástæðu hárrar greiðslu þegar hann tók við formennskunni í júní 2011 hafa legið í mikilli vinnu vegna endurreisnar fjármálakerfisins og FME. Hann hefði sjálfur óskað eftir launalækkun haustið 2012 úr 600.000 í 400.000 kr. þar sem starfinu miðaði vel og líklegt var að álag myndi minnka. Þótt leiðréttingunni sé til skila haldið breytir niðurstaðan ekki því að hróplegur munur er enn á launum fyrir stjórnarformennsku hjá FME og TR, þar sem formaðurinn fær ríflega 60 þús. kr. á mánuði. Ég ætla ekki að dæma um hvað er hæfileg greiðsla fyrir formennsku í þessum stjórnum. Fyrst og fremst bendi ég á að sá margfaldi munur sem þarna er á greiðslum vekur furðu og getur ekki byggst á skynsamlegu eða raunhæfu mati á ábyrgð, umfangi verkefna eða mikilvægi þeirra. Ég tel augljóst að hér búi að baki gamaldags og úrelt karllæg viðhorf um hin meintu hörðu fjármál og mjúku velferðarmál.Þessu verður að breyta Stjórnarformaður FME tekur undir með mér um að löngu sé tímabært að við áttum okkur á að velferðarmál eru ekki mjúkur málaflokkur og skrifar: „Stundum kann að eiga við að lækka laun, eins og ég hef gert í tilfelli stjórnarformanns FME, og víða þarf að hækka laun í störfum við velferðarmál.“ Þessu er ég algjörlega sammála og ég geri ráð fyrir að margir deili með okkur þessari skoðun. Fyrir nokkru var lokið við gerð jafnlaunastaðals sem unnið hefur verið að á liðnum árum. Aðgerðahópur á vegum stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins vinnur að innleiðingu staðalsins, sem ég vona að reynist gott tæki til að eyða kynbundnum launamun, breyta viðhorfum og leggja skynsamlegan grunn fyrir réttmætar launaákvarðanir.
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun