Þjónn hugsjóna Erna Reynisdóttir skrifar 6. júní 2013 08:49 Hugmyndafræðin um þjónandi forystu er ekki ný af nálinni. Hún sameinar margar ólíkar stefnur en viljinn til að þjóna og innri styrkur eru meginstoðir þessara fræða. Áhugavert er að skoða hversu mikilvæg þjónandi forysta er þeim sem taka að sér trúnaðarstörf í félagasamtökum. Félagasamtök geta verið af margvíslegum toga. Undir þau flokkast t.d. íþróttafélög, mannúðarsamtök, stjórnmálaflokkar, góðgerðarfélög og skátar. Leiðtogar félagasamtaka eiga það yfirleitt sameiginlegt að vera sterkir einstaklingar og með brennandi áhuga á viðfangsefninu. En dugar það til? Samkvæmt Robert Greenleaf, upphafsmanni þjónandi forystu, þarf góður leiðtogi að líta á sjálfan sig fyrst og fremst sem þjón og síðan sem leiðtoga. Leiðtoginn er þjónn félagsmanna og/eða starfsfólks og þjónn sameiginlegra hugmynda og hugsjóna. Fer það saman að vera sterkur einstaklingur og að vera þjónn? Svarið er já því sterkur leiðtogi þekkir sjálfan sig og sína styrkleika og veikleika. Hann hefur kraft til að virkja styrkleika sína og þor til að viðurkenna veikleika sína. Sterkur leiðtogi hefur yfirsýn, teflir saman ólíkum sjónarmiðum og hvetur til gagnrýnnar hugsunar. Hann hlustar á hugmyndir annarra af áhuga og einlægni og kann að sýna auðmýkt án þess að missa virðingu. Hann er opinn fyrir tækifærum og möguleikum, hlustar og ígrundar. Þannig er þjónandi leiðtogi.Hagsmunir heildarinnar Einstaklingar sem bjóða sig fram í trúnaðarstörf í félagasamtökum, s.s. formennsku, stjórnir eða nefndir, hafa oftar en ekki þessa eiginleika og þörf þeirra til að láta gott af sér leiða er sterk. Þeir eru drifnir áfram af áhuga á málefninu og leggja oft og tíðum mikið á sig til að árangur náist. Þeir setja hagsmuni heildarinnar framar sínum persónulegum hagsmunum. Fæstir þjónandi leiðtogar vita sjálfir að þeir myndu flokkast sem slíkir enda eðli þeirra að vera með athyglina á málefninu frekar en á þeim sjálfum. Hæfni í mannlegum samskiptum er því eiginleiki sem þjónandi leiðtogi hefur tileinkað sér og þar spilar hæfileikinn til virkrar hlustunar ekki minna hlutverk en hæfileikinn til að tjá sig. Föstudaginn 14. júní verður haldin alþjóðleg ráðstefna um þjónandi forystu í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Yfirskrift ráðstefnunnar er Menntun – Sköpun og samfélag. Vil ég hvetja sérstaklega þá sem starfa í hvers kyns félagasamtökum til að sækja ráðstefnuna. Hugmyndafræði þjónandi forystu á erindi við svo til alla. En fyrir þá sem starfa í félagasamtökum getur verið einstaklega áhugavert að kynna sér hana og styrkja sig í þeim eiginleikum sem þarf til að ná árangri í samvinnu og samskiptum og þar með vinna sem best að hugsjónum heildarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar