Skatttekjum sólundað 4. apríl 2013 12:00 Tyrfingur Guðmundsson er ekki sérlega ánægður með að fá 249 milljónir úr vasa skattgreiðenda fyrir að gera ekki neitt. Hann hefði heldur viljað fá að gera eitthvað, fá tækifæri sem var fengið öðrum sem vildi græða meira á þjónustu við íslenska fjölbrautaskólanema. Af þessu er birt frétt á vísir.is. Í fréttinni segir að Vegagerðin hafi boðið út skólaakstur fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands og Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 2005. Lægstbjóðandi fékk ekki verkefnið heldur aðili sem hugnaðist mönnum hjá Vegagerðinni betur. Skýringar Vegagerðarinnar stóðust ekki lög að mati dómstóla. Þetta útboð er enn eitt dæmi um vanhæfni í opinberri stjórnsýslu og enn er seilst í vasa skattgreiðenda, sem er gert að greiða Tyrfingi fyrir að gera ekki neitt vegna afglapa embættismanna. Vissulega er það áhugavert að Tyrfingur er lítið glaður yfir því að fá 249 milljónir fyrir að gera ekki neitt. En öllu áhugaverðara væri að rýna í aðra þætti þessa máls. Hverjir eru þeir menn eða konur sem tóku ákvörðun í þessu máli sem er að kosta skattgreiðendur 249 milljónir á þessu ágæta kreppuári? Þurfa þeir að sæta ábyrgð eða viðurlögum vegna trassaskapar eða að hafa byggt forsendur á spillingu? Hver fékk verkefnið? Bauð sá sem fékk verkefnið einhverjum embættismönnum í veiði eða golfferð árið 2005? Ekki er ólíklegt að sambærilegar fréttir eigi eftir að birtast áfram í íslenskum fjölmiðlum enda virðast gerendur ekki þurfa að standa skil á trassaskap/vanhæfni/spillingu eða hvað það nú er sem stjórnar gjörðum þeirra. Það þykir ekkert athugavert að dæma búðarþjófa fyrir smáhnupl og rökin fyrir því virðast vera að senda skilaboð til þeirra sem gerast fingralangir. Embættismenn og þeir sem falin eru trúnaðarstörf af hálfu embættismanna virðast hins vegar geta sólundað hundruðum milljóna af skatttekjum ríkisins án þess að þurfa að standa á því nokkur skil. Engin skilaboð eru send út önnur en þau að Tyrfingur er ekkert sérlega glaður yfir framvindu þessa máls. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Sjá meira
Tyrfingur Guðmundsson er ekki sérlega ánægður með að fá 249 milljónir úr vasa skattgreiðenda fyrir að gera ekki neitt. Hann hefði heldur viljað fá að gera eitthvað, fá tækifæri sem var fengið öðrum sem vildi græða meira á þjónustu við íslenska fjölbrautaskólanema. Af þessu er birt frétt á vísir.is. Í fréttinni segir að Vegagerðin hafi boðið út skólaakstur fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands og Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 2005. Lægstbjóðandi fékk ekki verkefnið heldur aðili sem hugnaðist mönnum hjá Vegagerðinni betur. Skýringar Vegagerðarinnar stóðust ekki lög að mati dómstóla. Þetta útboð er enn eitt dæmi um vanhæfni í opinberri stjórnsýslu og enn er seilst í vasa skattgreiðenda, sem er gert að greiða Tyrfingi fyrir að gera ekki neitt vegna afglapa embættismanna. Vissulega er það áhugavert að Tyrfingur er lítið glaður yfir því að fá 249 milljónir fyrir að gera ekki neitt. En öllu áhugaverðara væri að rýna í aðra þætti þessa máls. Hverjir eru þeir menn eða konur sem tóku ákvörðun í þessu máli sem er að kosta skattgreiðendur 249 milljónir á þessu ágæta kreppuári? Þurfa þeir að sæta ábyrgð eða viðurlögum vegna trassaskapar eða að hafa byggt forsendur á spillingu? Hver fékk verkefnið? Bauð sá sem fékk verkefnið einhverjum embættismönnum í veiði eða golfferð árið 2005? Ekki er ólíklegt að sambærilegar fréttir eigi eftir að birtast áfram í íslenskum fjölmiðlum enda virðast gerendur ekki þurfa að standa skil á trassaskap/vanhæfni/spillingu eða hvað það nú er sem stjórnar gjörðum þeirra. Það þykir ekkert athugavert að dæma búðarþjófa fyrir smáhnupl og rökin fyrir því virðast vera að senda skilaboð til þeirra sem gerast fingralangir. Embættismenn og þeir sem falin eru trúnaðarstörf af hálfu embættismanna virðast hins vegar geta sólundað hundruðum milljóna af skatttekjum ríkisins án þess að þurfa að standa á því nokkur skil. Engin skilaboð eru send út önnur en þau að Tyrfingur er ekkert sérlega glaður yfir framvindu þessa máls.
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar