Gestir bóki tíma í Bláa lónið 18. mars 2013 06:00 Búist er við metfjölda gesta í Bláa lónið í sumar. Fyrir vikið verður opnunartími meðal annars lengdur. Fréttablaðið/Valli
Gestir Bláa lónsins þurfa framvegis að bóka tíma í lónið fyrirfram á vefnum. Geri þeir það ekki er hætta á að þeir komist ekki að. Þá verður rukkað fyrir skoðunarferðir um staðinn þótt viðkomandi gestir fari ekki ofan í lónið. Þetta eru tvær ráðgerðra breytinga á þjónustu Bláa lónsins sem taka gildi í sumar. „Við eigum von á metfjölda gesta í Bláa lónið í sumar. Lónið er hins vegar takmörkuð auðlind og með þessum breytingum viljum við standa vörð um sjálfbærni lónsins og upplifun gesta,“ segir Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Bláa lónsins og bætir við að lónið verði opið til klukkan tólf á miðnætti yfir hásumarið í stað klukkan níu að kvöldi áður. Þá segir Magnea að breytingarnar, sem taka gildi 1. júní, verði vel kynntar á næstu vikum, ekki síst fyrir ferðaskrifstofum og öðrum sem skipuleggja ferðir í Bláa lónið. Á síðasta ári lögðu tæplega 600 þúsund gestir leið sína í Bláa lónið en þar af skoðuðu 112 þúsund staðinn án þess að fara ofan í lónið sjálft. Frá og með 1. júní þurfa þeir gestir að greiða 10 evrur fyrir heimsóknina, um 1.600 krónur. Einni evru af tíu verður varið til uppbyggingar á ferðaþjónustu á Reykjanesi. - áp, mþl
Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira