Fátækragildra aldraðra Jóhanna Axelsdóttir skrifar 20. febrúar 2013 06:00 Ég er ein af þeim sem ekki er hrifin af kerfinu sem hefur verið til margra ára hjá Tryggingastofnun, um leið og ég kom þangað inn á 69. aldursári spenntist upp fátækragildra. Það er afskaplega áríðandi að þessu kerfi verði breytt, til hagsbóta fyrir notendur. Ég segi fyrir mig, að hefði ég ekki fengið aðstoð góðra manna síðara hluta ársins 2012, hefði ég ekki haft í mig og á, það er afskaplega vond tilfinning að sjá ekki ljós framundan, koðna niður í fátækt og volæði, ég var farin að sjá fyrir mér gröfina og heyra í moldinni falla yfir mig. Þessi sífellda njósnaaðferð, fara inn á bankareikninga og sekta fólk er ekki mönnum bjóðandi. Mér líður eins og ég sé undir eftirliti lögreglu. Þessi upphæð sem fólk hefur leyfi til þess að vinna fyrir á ári er beinlínis hlægileg. Hvar er hægt að fá vinnu sem býður fóki 40 þúsund á mánuði? Staðan er óþolandi fyrir þá sem hafa ekkert nema lífeyri frá Tryggingastofnun og smávegis frá lífeyrissjóði sem er dregið frá lífeyrinum sem sífellt er verið að skerða.Leita til hjálparsamtaka Hvers vegna sækja svona margir ellilífeyrisþegar til hjálparsamtaka? Það er ekki eins og við eigum að þurfa að betla, fólk sem hefur lagt sitt til samfélagsins alla starfsævina. Það hafa ekki allir gengið menntaveginn og þar af leiðandi ekki þegið há laun fyrir störf sín um ævina, sbr. þá sem falla undir verkalýðsfélögin. Ég hef heyrt því fleygt að einhverjir geymi fjármuni sína í bankahólfum, jafnvel í útlendum bönkum. Það eru sjálfsagt til margar leiðir, sem venjulegt fólk þekkir bara ekki. Hrunið setti strik í reikninginn fyrir margan manninn sem var t.d. að safna fyrir utanlandsferð eftir starfslok, eða eitthvað álíka, til að auðga andann, sem ekki er síður nauðsynlegt á efri árum. Ég setti til hliðar á sparireikninga og hávaxtasjóði sem fóru á hliðina. Ef það eru til stjórnmálamenn sem eru til í að taka þessi mál upp á sína arma, mun ég styðja þann flokk, og sjálfsagt margir fleiri. Heyrt hef ég utan að mér að fólk ætli ekki að ryðjast í hópum til þess að kjósa, og það er slæmt að nota ekki kosningaréttinn. Það gengur ekki þetta flókna kerfi sem viðgengst, sendandi fólki bréf frá stofnuninni, þar sem koma fram alls kyns skerðingar vegna þessa og hins, sem er líka ákaflega ruglandi. Skattayfirvöld ættu að innheimta skattinn beint af okkur sem erum eitthvað að starfa, eða finna einhverja betri lausn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar