Skíðaskálinn aftur í hendur fyrri eiganda Garðar Örn Úlfarsson skrifar 22. febrúar 2013 07:00 Mynd/ Pjetur.
Skíðaskálinn í Hveradölum er aftur kominn í eigu Svavars Helgasonar eftir að félag sem keypti skálann í september síðastliðnum stóð ekki við greiðslur. „Þetta er leiðindamál og það er verið að rifta þessu. Ég ætla bara að reka þetta áfram þangað til annað kemur í ljós," segir Svavar sem hefur verið með veitingasölu í Skíðaskálanum frá því 1995. Fram kom í Fréttablaðinu í nóvember síðastliðnum að kaupendurnir, sem voru Inga Lísa Sólonsdóttir og Aron Þorsteinson, hygðu á mikla uppbyggingu við Skíðaskálann og stóreflingu ferðaþjónustu þar á svæðinu. Frá því kaupin voru frágengin hefur verið lagt þar í ýmsar framkvæmdir, til dæmis málningarvinnu, stígagerð og ýmsa jarðvinnu. Meðal hugmynda sem settar voru fram í haust var uppbygging baðlónsins Viking Lagoon, gerð golfvallar og smíði þyrlupalls fyrir útsýnisflug. „Þessi fjárfesting er svokölluð gullnáma sem hefur verið afar vannýtt eða legið í dvala, gullnáma sem býður í raun upp á óendanlega möguleika," sagði í viðskiptaáætlun fyrir verkefnið. Umsamið verð Skíðaskálans var 98,5 milljónir króna. Af þeirri upphæð greiddu Aron og Inga Lísa 9 milljónir út og áttu að borga 6,5 milljónir króna 7. janúar síðastliðinn en gerðu ekki. Þess utan áttu þau að greiða 650 þúsund krónur mánaðarlega af 82 milljóna króna láni sem hvíldi á fasteigninni. „Mér þykir þetta mál allt mjög leitt. Vegna þess hvernig hlutirnir þróuðust var ekki hægt að halda verkefninu áfram," segir Aron Þorsteinsson aðspurður um málið. Í Fréttablaðinu í nóvember kom fram að Aron og Inga Lísa væru hjón. Aron segir þetta rangt. Þau Inga hafi átt í sambandi um fárra mánaða skeið frá því um mitt síðasta sumar en því hafi verið lokið áður en sagt var frá málinu í Fréttablaðinu. Sjálfur kveðst Aron hafa afsalað sér hlut sínum í félaginu þegar áðurnefnda greiðslu átti að inna af hendi í byrjun janúar. „Svavar Helgason hefur staðið vel við allt sitt og ég óska honum alls hins besta," segir Aron Þorsteinsson.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Sjá meira