Færri slasast við störf eftir hrun Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 16. febrúar 2013 06:00 Slys tilkynnt til Vinnueftirlitsins eru aðeins brot af þeim fjölda vinnuslysa sem tilkynntur er til Slysaskrár. Fréttablaðið/Vilhelm
Alls var tilkynnt um 1.322 vinnuslys til Vinnueftirlitsins árið 2011 og þrjú dauðsföll vegna vinnuslysa. Árið 2007 voru tilkynningarnar um vinnuslys 1.919. Útköllin árið 2011 voru 53-60 prósent af því sem þau voru 2007-2008. Munurinn skýrist helst af miklum samdrætti í byggingariðnaði, að því er segir í ársskýrslu Vinnueftirlitsins. Þar kemur einnig fram að heildarfjöldi skoðana og heimsókna í fyrirtæki árið 2011 hafi dregist saman um 21 prósent miðað við árið á undan. Eftirlitsmönnum í fyrirtækjaeftirliti hefur fækkað um þriðjung á síðustu þremur árum vegna sparnaðar. Slysin sem tilkynnt eru til Vinnueftirlitsins eru hins vegar aðeins brot af þeim fjölda vinnuslysa sem tilkynntue er til Slysaskrár Íslands en þau voru 5.386 árið 2011. Árið 2007 voru þau 7.297. „Slysin sem tilkynnt eru til Vinnueftirlitsins eru þau sem valda fjarveru í að minnsta kosti einn dag. Ef fólk er ekki frá vinnu vegna slyss á vinnustað er tilkynnt um slysið til heilbrigðiskerfisins, það er slysaskrárinnar,“ segir Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS. Hann segir að stjórnendur fyrirtækja eigi að horfa fram á við í öryggismálum en ekki í baksýnisspegilinn. Þeir þurfi að greina hætturnar í vinnuumhverfi og starfsemi í tíma áður en slys verður. Gísli Níls kveðst kalla eftir annarri sýn í þessu samhengi. „Stjórnendum ber að skipuleggja öryggismálin með fyrirbyggjandi aðgerðir í huga en ekki bregðast fyrst við þegar í óefni er komið. Fjöldi námskeiða og fræðsla um öryggismál, fjöldi eftirlitsferða á vinnustaðnum, fjöldi skráninga á næstum því slysum auk endurskoðunar á áhættumati eru dæmi um aðra mælikvarða sem atvinnurekendur geta nýtt til að meta árangur sinn í öryggismálum starfsmanna.“ Slysum meðal kvenna hefur lítið fækkað en slysum meðal karla hefur fækkað verulega í öllum flokkum frá 2007, að því er kemur fram í ársskýrslu Vinnueftirlitsins. Frá 2009 hefur ekki orðið frekari fækkun slysa og segir í skýrslunni að það verði að teljast verulegt áhyggjuefni. Árið 2011 slösuðust 879 karlar og 443 konur. Vinnueftirlitið og VÍS halda opna ráðstefnu um ábyrgð, hlutverk og sýn æðstu stjórnenda í öryggismálum föstudaginn 22. febrúar.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira