Þóknanir allra slitastjórna gætu verið opinberaðar Þórður Snær Júlíusson skrifar 15. febrúar 2013 06:00 Krafa lífeyrissjóðanna byggir á því að þær þóknanir sem slitastjórn Glitnis hefur tekið sér séu óhóflegar. Slitastjórnin, sem Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson mynda, hafnar því. Fréttablaðið/GVA
Ef krafa fimm lífeyrissjóða um að Héraðsdómur Reykjavíkur láti slitastjórn Glitnis skila meintum ofgreiddum þóknunum í þrotabúið verður tekin til efnislegrar meðferðar er óhjákvæmilegt að dómurinn afli sér allra upplýsinga um þóknanir annarra slitastjórna líka. Þetta er mat slitastjórnar Glitnis sem sett er fram í svarbréfi hennar vegna kröfu lífeyrissjóðanna. Fréttablaðið hefur bréfið, sem var sent á þriðjudag, undir höndum. Lífeyrissjóðirnir fimm; Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi lífeyrissjóður, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Festa lífeyrissjóður, vilja meina að Steinunn Guðbjartsdóttir, Páll Eiríksson og fyrirtæki þeirra hafi oftekið sér um 400 milljónir króna í þóknanir fyrir störf við þrotabúið. Alls höfðu þau fengið 842 milljónir króna greiddar um mitt síðasta ár. Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að engir kröfuhafar Kaupþings og LBI (gamla Landsbankans) hefðu farið fram á sundurliðaðan kostnað vegna þóknana þeirra. Slitastjórnir þeirra beggja hafa ekki viljað opinbera slíka sundurliðun. Af upplýsingum sem hægt er að finna á heimasíðu LBI má þó reikna út að heildarkostnaður við slitastjórn og skilanefnd bankans hafi verið 1,7 milljarðar króna fram á mitt síðasta ár. Það er helmingi meiri kostnaður en slitastjórn Glitnis hefur greitt sér. Slitastjórn Kaupþings hefur hvorki viljað afhenda upplýsingar um þær þóknanir sem greiddar hafa verið til slitastjórnar og skilanefndar bankans né launakostnað Kaupþings. Í bréfi slitastjórnar Glitnis til héraðsdóms segir að „telji héraðsdómur að erindið sé tækt til efnismeðferðar er óhjákvæmilegt að héraðsdómur leiti upplýsinga um kostnað og tímagjald sambærilegra sérfræðinga eigi þessi samanburður um þóknun og tímagjald að fara fram enda byggir krafa lífeyrissjóðanna á því að tímagjald Glitnis sé óhóflegt og standist ekki samanburð við sambærileg störf sérfræðinga hjá öðrum sambærilegum slitastjórnum“.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira