Innlent

60 fermetrum bætt á áætlun

Þorgils Jónsson skrifar
Nýtt hjúkrunarheimili rís brátt á Ísafirði. Fréttablaðið/Rósa
Nýtt hjúkrunarheimili rís brátt á Ísafirði. Fréttablaðið/Rósa
Nýtt hjúkrunarheimili á Ísafirði verður um 60 fermetrum stærra en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir, en hjúkrunarheimilisnefnd samþykkti á dögunum að stækka teikningarnar til að byggja tengibyggingu við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og stækka sal í miðrými. Frá þessu segir á vef Bæjarins besta.

Þar segir að heildarstærð nýbyggingarinnar verði alls 2.310 fermetrar, en velferðarráðuneytið mun þó einungis leigja þá 2.250 fermetra sem það samþykkti.

Mun ráðuneytið að sögn Bæjarins besta, greiða tæpar sex milljónir á mánuði fyrir aðstöðuna. Byggingarkostnaður er áætlaður fimmtán til átján milljónir og munu þar verða þrjátíu rými.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×