Fjölgar mest á Íslandi Óli Kristján Ármannsson skrifar 14. febrúar 2013 06:00 Straumur ferðamanna jókst hvergi eins og hér í fyrra.Fréttablaðið/HAG
Ferðamönnum sem heimsækja Evrópulönd fjölgaði um fjögur prósent á síðasta ári, samkvæmt nýbirtum tölum Ferðamálaráðs Evrópu (European Travel Commission, ETC). Aukningin er minni en 2011 þegar hún var sjö prósent. Langmest var aukning ferðamanna til Íslands, tæp tuttugu prósent frá árinu 2011. Aukningin er nær helmingi meiri en í löndunum í öðru og þriðja sæti, Litháen og Rúmeníu. Mestur er samdrátturinn svo á straumi ferðamanna til Grikklands, 5,2 prósent, til Póllands 1,8 prósent og til Ítalíu um 0,4 prósent. Í nýrri skýrslu ETC um þróun og horfur í evrópska ferðaiðnaðinum kemur fram að nokkuð hafi komið á óvart að heimsóknir til Bretlands hafi staðið í stað milli ára, þrátt fyrir viðburði sem vakið hafi heimsathygli í landinu. Þannig hafi á árinu verið bæði hátíð vegna sextíu ára valdatíðar Elísabetar Englandsdrottningar og Ólympíuleikar, bæði fatlaðra og ófatlaðra. Þá hafi Evrópumeistaramótið í fótbolta í Póllandi ekki skilað sér í fjölgun ferðamanna. „Reynsla frá fyrri tíð sýnir hins vegar að stórviðburðir auka venjulega áhuga ferðamanna á áfangastöðum til miðlungslangs og lengri tíma," segir í skýrslunni. Mannþröng og verðhækkanir geti hins vegar virkað letjandi á árinu sem viðburðurinn fer fram.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira