Mundi hiklaust veðja á Gunnar Nelson 6. febrúar 2013 06:00 Gunnar Nelson er talinn líklegur til sigurs í næsta UFC bardaga. Halldór Halldórsson hefur mestar áhyggjur af þyngarmuninum milli Gunnars og Santiago, en sá síðarnefndi er töluvert stærri og þyngri.
Gunnar Nelson kemur til með að keppa sinn annan atvinnumannabardaga í UFC deildinni þann 16. febrúar næstkomandi. Þá mætir hann Brasilíumanninum Jorge „Sandman" Santiago í Wembley Arena í London. Athygli vekur að veðmálasérfræðingar í MMA bardögum hjá Betsson telja meiri líkur á að Gunnar fari með sigur af hólmi þrátt fyrir að andstæðingur hans sé reynslumeiri og töluvert stærri en hann sjálfur. Stuðullinn sem Betson setur á Gunnar er 1,57 en á Santiago er settur stuðullinn 2,25, sem þýðir að Gunnar er talinn sigurstranglegri. Að sögn Halldórs Halldórssonar, sérfræðings í MMA bardögum, kemur þetta ekki á óvart. „Gunni er á mjög hraðri uppleið og er töluvert meira en bara efnilegur, hann er einn af bestu mönnum í heimi í gólfglímu. Mér finnst fólk þó eiga til að gleyma því að allt getur gerst í svona bardaga. Það geta allir tapað," segir Halldór sem hefur mestar áhyggjur af þyngarmuninum milli Gunnars og Santiago, en sá síðarnefndi er töluvert stærri og þyngri. Inntur eftir því hvort hann mundi sjálfur veðja á Gunnar í umræddum bardaga svarar hann játandi. „Ég mundi hiklaust veðja á Gunnar. Hérna megin í Vesturbænum hef ég fulla trú á því að Gunnar Nelson sé næsti heimsmeistari í MMA."
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira