Guðjón Valur tók markametið af Ólafi Stefáns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2013 10:00 Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, átti mjög flottan leik á móti Katar á HM á Spáni í gær og var ekki bara markahæsti maðurinn í íslenska liðinu því hann skrifaði einnig nafn sitt í sögubækurnar. Guðjón Valur gerði það þegar hann skoraði sitt 128. mark á heimsmeistaramóti og varð sjötti handboltamaðurinn sem eignast metið yfir flest mörk Íslendings á HM í handbolta. Guðjón Valur sló met Ólafs Stefánssonar sem hefur þó tekið þátt í einu heimsmeistaramóti meira en Guðjón. Guðjón bætti við sjö mörkum og endaði sem markahæsti leikmaður íslenska liðsins í leiknum.5,6 mörk að meðaltali í leik Guðjón Valur er að taka þátt í sinni sjöttu heimsmeistarakeppni en hann hefur spilað alla leiki Íslands í úrslitakeppni HM frá því á HM í Frakklandi fyrir tólf árum. Hann hefur skorað mörkin 235 í 44 HM-leikjum eða 5,6 mörk að meðaltali í leik. Ólafur skoraði sín 127 mörk í 54 leikjum eða 4,2 mörk að meðaltali í leik. Ólafur Stefánsson var búinn að eiga HM-markametið í heilan áratug en hann tók það af Patreki Jóhannessyni í lokaleik Íslands á HM í Portúgal 2003. Ólafur bætti við 106 mörkum áður en hann lék sinn síðasta leik á HM fyrir tveimur árum en ekkert varð af því að hann spilaði með á Spáni. Patrekur átti metið styst eða aðeins í nokkra daga því hann sló met Valdimars Grímssonar í öðrum leik liðsins á HM í Portúgal. Patrekur var hins vegar sá leikmaður sem braust fyrstur yfir hundrað marka múrinn en það gerði hann í leik á móti gestgjöfum Portúgals eða í næsta leik á eftir að hann tók metið af Valdimar. Guðjón Valur er eini Íslendingurinn sem orðið hefur markakóngur HM, en því náði hann á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi 2007. Guðjón Valur skoraði þá 66 mörk í tíu leikjum, 6,6 mörk að meðaltali í leik. Markamet Íslendings á HM í handboltaGunnlaugur Hjálmarsson (1958-1990) 49 mörk HM 1958 (16 mörk) - 16 mörk samanlagt HM 1961 (22) - 38 HM 1964 (11) - 49Missti metið: 3. mars 1990Kristján Arason (1990-1997) 65 mörk HM 1986 (41 mark) - 41 mark samanlagt HM 1990 (24) - 65Missti metið: 22.maí 1997Valdimar Grímsson (1997-2003) 95 mörk HM 1990 (5 mörk) - 5 mörk samanlagt HM 1993 (4) - 9 HM 1995 (34) - 43 HM 1997 (52) - 95Missti metið: 24.janúar 2001Patrekur Jóhannesson (2003) 121 mark HM 1993 (7 mörk) - 7 mörk samanlagt HM 1995 (16) - 23 HM 1997 (40) - 63 HM 2001 (25) - 88 HM 2003 (33) - 121Missti metið: 2. febrúar 2003Ólafur Stefánsson (2003-2013) 227 mörk HM 1995 (11 mörk) - 11 mörk samanlagt HM 1997 (26) - 37 HM 2001 (32) - 69 HM 2003 (58) - 127 HM 2005 (25) - 152 HM 2007 (53) - 205 HM 2011 (22) - 227Missti metið: 18. janúar 2013Guðjón Valur Siguðrsson (2013-) 235 mörk HM 2001 (15 mörk) - 15 mörk samanlagt HM 2003 (39) - 54 HM 2005 (31) - 85 HM 2007 (66) - 151 HM 2011 (47) - 198 HM 2013 (37) - 235
Mest lesið Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira