Aron: Lofa því að spila betur í næstu leikjum Sigurður Elvar Þórólfsson í Sevilla skrifar 15. janúar 2013 07:30
Aron Pálmarsson ætlar sér stóra hluti með íslenska landsliðinu í næstu leikjum heimsmeistaramótsins í Sevilla. Aron, sem leikur með Kiel í Þýskalandi, er allt annað en sáttur við sitt framlag til liðsins í fyrstu tveimur leikjunum og lofar því að gera betur. „Ég var hundfúll með sjálfan mig eftir fyrsta leikinn – og ég get gert miklu betur. Og ég lofa því að spila miklu betur í næstu leikjum. Ég mun standa við það, 100%," sagði Aron í gær við Fréttablaðið. Hann telur að Ísland eigi helmingslíkur á því að leggja Makedóníu að velli í dag í Sevilla. „Við ætlum að mæta dýrvitlausir til leiks og berja á þeim allan leikinn. Kiril Lazarov er þeirra aðalmaður og við þurfum að hafa góðar gætur á honum, ásamt fleiri leikmönnum. Vörnin þarf að vera í lagi og þannig náum við hraðaupphlaupum á þá og gerum þá pirraða fljótt," segir Aron. „Vignir Svavarsson og Sverre Jakobsson fá það verkefni að glíma við risastóra línumenn þeirra en við hinir þurfum að fara fram og berja skytturnar. Þetta er okkar leikstíll og við erum vanir þessu, ég held að þetta eigi eftir að virka gegn Makedóníu," segir Aron, sem tekur ekki mikið mark á fyrstu tveimur leikjum Makedóníu á HM. „Ég held að þeir hafi mætt með hangandi hendi í fyrstu tvo leikina gegn Síle og Katar. Þeir ætluðu sér að eyða sem minnstu púðri í þá leiki og landa bara sigrum. Svo þegar kemur að stóru leikjunum stíga þeir upp og sýna sitt rétta andlit. Við munum ekki vanmeta þá og það eru helmingslíkur á sigri," sagði Aron Pálmarsson.
Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira