Hagsmunir Reykvíkinga Björn B. Björnsson skrifar 6. júní 2013 08:51 Ástæða mótmæla gegn áformum borgaryfirvalda um að breyta deiliskipulagi á þann veg að leyfilegt verði að byggja risahótel á Landssímareitnum er sú að bygging hótelsins er andstæð hagsmunum borgarbúa. Bygging hótelsins mun valda skaða á Ingólfstorgi, Austurvelli, í Kirkjustræti og Fógetagarðinum, auk þess sem Nasa-salurinn verður rifinn – og við sitjum uppi með óleyst umferðarvandamál. Hagsmunir lóðareigandans eru þeir að fá að byggja hótel því með því hámarkar hann gróða sinn í þessum viðskiptum en það eru ekki einu hagsmunirnir sem taka þarf tillit til. Ef við horfum á málið út frá hagsmunum borgarbúa (og annarra landsmanna) lítur dæmið svona út: 1. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að Nasa-salurinn verði rifinn. 2. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að í stað Nasa-salarins komi há bygging sem ber gamla Kvennaskólann ofurliði (og veldur skuggavarpi á Austurvelli). 3. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að snúa af þeirri braut að á Ingólfstorgi séu gömul hús á þrjá vegu. 4. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að skemma Landsímahús Guðjóns Samúelssonar með kvistum eftir endilöngu þakinu. 5. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að byggja viðbyggingu við viðbyggingu Landsímahússins alveg að Kirkjustræti og loka þannig fallegu útsýni milli Austurvallar og Fógetagarðs. 6. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að taka morgunsólina úr Fógetagarðinum með þessari viðbyggingu. 7. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að afhenda einkaaðila endurgjaldslaust stíginn milli Ingólfstorgs og Fógetagarðs til að byggja á og yfir. Borgarbúar eiga að geta gengið þennan stíg án þess að þurfa fara í gegnum hótel eða annað fyrirtæki. 8. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að auka skuggavarp á Austurvelli (með hárri byggingu þar sem Nasa-salurinn er nú, kvistum ofan á Landsímahúsinu og viðbyggingu við viðbygginguna á Landsímahúsinu). 9. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að draga alla þá umferð sem fylgir stóru hóteli inn á viðkvæmasta stað miðborgarinnar við Alþingishúsið og Austurvöll. 10. Það þjónar ekki hagsmunum Reykvíkinga að þrengja að Alþingi, aðgengi þess og öryggi eins og þingið hefur bent á í mótmælum sínum gegn þessum áformum. Niðurstaðan er sú að það sé andstætt hagsmunum Reykvíkinga að reist verði hótelbygging á þessum stað og það er skylda borgarfulltrúa, hvar í flokki sem þeir eru, að standa vörð um hagsmuni borgarbúa. Mótmælafundur gegn þessum áformum verður haldinn á Austurvelli á laugardaginn kl. 14.00. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar