Þurfum við betri vinnustaði? Sigrún Gunnarsdóttir skrifar 6. júní 2013 08:50 Getur verið að þrátt fyrir landsþekktan dugnað og vinnusemi gætum við staðið okkur betur í vinnunni? Getur verið að öll seiglan gæti skilað okkur betri vellíðan í vinnu, meiri framleiðni og hagkvæmari rekstri? Ef marka má kannanir undanfarna mánuði eru ýmis ónotuð tækifæri á vinnustöðum hér á landi til að ná betri árangri. Framleiðni almennt er til dæmis minni hér á landi en í öðrum löndum. Á sama tíma hefur þreyta meðal starfsfólks hér sjaldan verið eins áberandi. Nú er lag að skoða þessar staðreyndir og leita ráða í þekkingarbrunnum. Eitt af því sem fræðimenn hér á landi og erlendis hafa ítrekað bent á er að mikilvægasti þátturinn til að ná árangri á vinnustöðum er stjórnunaraðferðir. Rannsóknir sýna endurtekið að næsti yfirmaður hefur langmest áhrif á það hvernig starfsmanni gengur að vinna störf sín og hvernig starfsmanninum líður í vinnunni. Framhjá þessari staðreynd verður vart gengið. Stjórnun og forysta hafa úrslitaáhrif. Með þessa staðreynd í huga, að næsti yfirmaður hafi mest áhrif á vellíðan og virkni í vinnu, er nærtækast að horfa þangað eftir leiðum til að bæta árangur vinnustaða hér á landi. Það er líka nærtækast að skoða forystu fyrirtækja og stofnana til að svara ákalli Rannsóknarskýrslunnar um fagmennsku, siðgæði og traust.Úrslitaáhrifin Hvort sem okkur líkar það betur eða verr eru það stjórnendur og leiðtogar sem hafa úrslitaáhrif á framleiðni fyrirtækja og stofnana. Leiðtoginn hefur bein áhrif á að virkja starfsfólk til góðra verka og getur gert starfsfólki kleift að njóta sín í starfi. Ein leið að þessu marki er að líta á stjórnandann og leiðtogann sem þjón. Líta svo á að stjórnandinn hafi fyrst og fremst það hlutverk að skapa aðstæður og samskipti þar sem kraftar og þekking starfsfólks njóta sín. Þetta sé mikilvægara en vegsauki og frami leiðtogans. Hlutverk stjórnandans sé að auka frelsi starfsfólksins eins og kostur er, lyfta starfsfólki upp, gera því kleift að blómstra í starfi og þannig ná árangri sem skilar vellíðan, virkni og framleiðni. Þegar stjórnandinn lítur á hlutverk sitt sem þjónustu við starfsfólk og fyrirtæki kemur allt annað af sjálfu sér. Þessi orð hafa verið margsönnuð í fyrirtækjum hérlendis og erlendis. Árangur vex, samskipti eru betri, sameiginleg sýn á tilgang verkefna skerpir aga og rekstur verður hagkvæmari. Fyrirtæki sem nota þjónandi forystu (e. servant leadership) í starfsmannamálum, stefnumótum og gæðamálum skila betri afkomu en gengur og gerist og starfsfólki þar líður betur en gengur og gerist. Þann 14. júní næstkomandi gefst tækifæri til að kynnast þessum áhugaverðu hugmyndum í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu þar sem erlendir og hérlendir sérfræðingar ræða um árangursríka stjórnun og farsæl starfsmannamál í ljósi þjónandi forystu. Aðalfyrirlesarinn er Margaret Wheatley sem er höfundur metsölubóka um þessar nýju aðferðir í stjórnun. Nú sem aldrei fyrr eru hugmyndir sem byggja á umhyggju fyrir velferð annarra, siðgæði og samfélagslegri ábyrgð mikilvægar og dýrmætar fyrir uppbyggingu á vinnustöðum og fyrir samfélagið allt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar