Upplýsingaskilti sýni ökumönnum heppilegan hraða Brjánn Jónasson skrifar 10. október 2013 06:00 Upplýsingaskilti þar sem ökumenn fá ráðleggingar um hraða gætu dregið úr slysum, mengun og sliti á götum. Fréttablaðið/Vilhelm
Umferðarstýring á stofnbrautum borgarinnar tekur hvorki tillit til veðuraðstæðna né aukins álags af öðrum ástæðum. Með því að bæta tækjabúnað og eftirlit mætti fækka umferðarslysum, draga úr mengun og sliti á götum segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Það er öruggt mál að það má gera betur,“ segir Júlíus Vífill. Hann vill að sett verði upp upplýsingaskilti fyrir ökumenn þar sem meðal annars komi fram ráðlegur hraði til að ekki þurfi að stoppa á rauðu ljósi. Alls eru 114 ljósastýrð gatnamót í Reykjavík. Af þeim eru um 50 tengd tölvukerfi sem samhæfir ljósin og breytir lengd þeirra eftir umferðarþunga. Kerfið skiptir á milli fjögurra fyrirfram forritaðra stillinga sem hugsaðar eru fyrir mismunandi tíma sólarhringsins. „Það er óeðlilegt að tölvan sem stýrir umferðarljósunum taki ekki mið af aðstæðum,“ segir Júlíus Vífill. Hann nefnir að utanaðkomandi aðstæður eins og snjór og hálka, eða fjölsóttur viðburður, geti sett samstillingu ljósanna í uppnám.Júlíus Vífill Ingvarsson„Það ætti að setja upp upplýsingaskilti þar sem bílstjórar geta séð á hvaða hraða væri heppilegt að aka til að þurfa ekki að stoppa á rauðu ljósi,“ segir Júlíus Vífill. Með því megi draga úr hraðakstri, enda freistist ökumenn gjarnan til að auka hraðann til að ná grænu ljósi framundan, með tilheyrandi slysahættu. Júlíus segir einnig hægt að hugsa sér að mannsaugað komi meira að umferðarstýringu. Með myndavélum á gatnamótum gæti einn maður fylgst með umferðinni og gert breytingar á ljósunum ef þurfa þyki. „Það er margt í boði þegar kemur að umferðarstýringu, og því þarf ekki að fylgja mikill kostnaður,“ segir Júlíus Vífill. Hann bendir á að umferðarslys kosti þjóðarbúið 25 til 30 milljarða króna á ári, og fé varið til að draga úr þeim kostnaði sé vel varið. Stefán Agnar Finnsson, yfirverkfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir ekki einfalt mál að stilla ljós þannig að ökumenn geti haldið jöfnum hraða og ekki þurft að stoppa á rauðu ljósi. Það sé auðveldast þegar jafnt bil sé á milli ljósa, en því sé ekki að heilsa í Reykjavík. Þess vegna verði alltaf einhver truflun, sérstaklega á álagstímum, óháð því hvernig ljósin séu stillt og hversu góð samhæfingin sé.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira