Tugmilljóna hönnun í súginn Jóhannes Stefánsson skrifar 12. júlí 2013 08:30 Egill Guðmundsson, einn eigenda Arkís, segir borgina sólunda tíma og fé borgarbúa með því að nota ekki teikningar Arkís af Dalskóla í Úlfarsárdal. Fréttablaðið/Vilhelm „
Það er verið að beita okkur ranglæti,“ segir Egill Guðmundsson hjá arkitektastofunni ARKÍS vegna meintra samningsbrota af hálfu Reykjavíkurborgar. Arkís og Reykjavíkurborg sömdu árið 2008 um að Arkís skyldi „fullhanna grunnskóla við Úlfarsbraut í Úlfarsárdal,“ eins og segir í samningnum. Hlé var gert á verkinu eftir hrun en Arkís var kallað aftur til síðla árs 2012. Að sögn Egils er borgin nú að vanefna samninginn. Reykjavíkurborg hafnar því. „Það var allt tilbúið fyrir aðalútboð, það var búið að hanna lóð og gera yfirlit yfir leiktæki,“ segir Egill. Tugir milljóna króna hafa þegar verið greiddar fyrir verkið. Á forsíðu Fréttablaðsins 4. desember síðastliðinn sagði að á árinu 2013 yrðu 250 milljónir settar til verkefnisins og efnt til hönnunarsamkeppni. Egill segir þetta fyrstu upplýsingarnar sem Arkís fékk um samkeppnina. „Á engu stigi málsins var samningnum sagt upp né farið í neitt uppgjör,“ segir hann. Egill segir arkitektastofuna vanhæfa til þátttöku í fyrirhugaðri samkeppni því hann hafi meðal annars tekið þátt í undirbúningshópi um stækkun skólans með sundlaug og íþróttahúsi og verið viðriðinn allan undirbúning fyrir hönnunina frá upphafi. Borgin forðist öll samskipti vegna málsins. „Við erum ítrekað búnir að óska eftir fundum með borginni, án árangurs,“ segir hann.Hönnun ARKÍS á Dalskóla var langt á veg komin og búið var að kynna hana fyrir íbúum í hverfinu.Mynd/ArkísDagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, vill ekki tjá sig um hvort og þá hvernig samningurinn við Arkís hafi verið til lykta leiddur. Í ljósi þess að áformað sé að reisa sundlaug, íþróttahús og fleira við skólann þurfi samkvæmt reglum borgarinnar að efna til útboðsins. „Þessir arkitektar telja að þeir eigi að fá að teikna þetta allt saman án samkeppni eða útboðs. Þeir hafa fengið töluvert mikið borgað,“ segir Dagur. Egill segir að þótt til standi að byggja fleira en aðeins skólann sé borgin samningsbundin við teiknistofuna um hönnun skólans. Dagur segir hins vegar „augljóslega um að ræða allt annað verkefni en áður“ og að ekki verði horfið frá hönnunarsamkeppninni sem borgarráð samþykkti í júní.
Mest lesið Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent 43 ára kvikmyndasaga kvödd Samstarf Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Sjá meira