Vilja aflétta veðum ÍLS af íbúðum Eirar Bjránn Jónasson skrifar 12. júlí 2013 07:45 Þótt aðeins tveir íbúðarrétthafar höfði málið á hendur þrotabúinu og Íbúðalánasjóði eiga allir íbúar sem eiga eitthvað inni hjá Eir hagsmuna að gæta. Fréttablaðið/Valli
Tveir íbúðarrétthafar hafa stefnt þrotabúi Eirar og Íbúðalánasjóði og vilja aflétta veðum sjóðsins af eignum þrotabúsins. Getur skipt gríðarmiklu máli fyrir alla rétthafa, segir lögmaður. Tekist er á um 1,9 milljarða veðkröfu Íbúðalánasjóðs. Tveir kröfuhafar sem ekki hafa fengið fé sem þeir lögðu í íbúðarrétt hjá hjúkrunarheimilinu Eir hafa kært niðurstöðu Sýslumannsins í Reykjavík til að freista þess að fá aflétt veðskuldabréfum Íbúðalánasjóðs (ÍLS) af fasteignum Eirar. Sýslumaður hafnaði því að aflétta veðskuldabréfunum. Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. „Það gæti verið ef þessar íbúðir reynast ekki meira virði en veðskuld Íbúðalánasjóðs að það verði ekkert eftir í búi Eirar til að greiða íbúðarréttarhöfunum,“ segir Sigríður Kristinsdóttir, lögmaður íbúðarréttarhafanna. Rétthafarnir, sem nú hafa höfðað mál, telja að Eir hafi ekki staðið rétt að því að veðsetja eignirnar. Samkvæmt lögum hafi stjórnendum Eirar borið að fá leyfi fyrir veðsetningunni hjá sýslumanni. Það hafi ekki verið gert, og því beri sýslumanni að aflétta veðsetningunni, enda ólöglega til hennar stofnað. Íbúðalánasjóður lánaði Eir um 1,9 milljarða króna á árunum 2007 til 2010 til byggingar á 120 íbúðum í fjórum húsum og tók á móti veð í húsunum. Miklu skiptir fyrir íbúðarrétthafa hvort Íbúðalánasjóður teljist veðhafi eða almennur kröfuhafi Eirar vegna þessara skulda. Raunar á eftir að takast á um það hvort íbúðarrétthafar teljist almennir kröfuhafar eða hvort þeir eigi veðkröfu. Veðkröfur eru tryggðar með veði í eignum og eru þær fyrst greiddar af andvirði eignanna, þannig að hugsanlegt er að veðið dugi ekki nema fyrir veðkröfum og þá kemur ekkert til greiðslu almennra krafna. Staðfesti dómstólar þá niðurstöðu Sýslumannsins í Reykjavík að Íbúðalánasjóður eigi veðrétt fær hann hugsanlega greitt á undan íbúum sem lögðu margir hverjir ævisparnaðinn í íbúðirnar á Eir. Sigríður á von á því að málið verði afgreitt hratt fyrir dómstólum. Dómstóllinn hefur þrjár vikur til að komast að niðurstöðu frá því málið er þingfest í dag. Líklegt er að niðurstaðan, hver sem hún verður, fari fyrir Hæstarétt, og segir Sigríður mikilvægt að fá lokaniðurstöðu í málið áður en greiðslustöðvun þrotabús Eirar rennur út þann 9. september næstkomandi. Íbúðalánasjóður mun taka til varna í málinu. Í yfirlýsingu sem sjóðurinn sendi Fréttablaðinu í gær segir að sjóðnum sé óheimilt að lána án þess að veð komi á móti. Hefði legið fyrir að lánunum yrði ekki þinglýst hefði ekkert orðið úr lánveitingunum, og íbúðirnar því tæpast risið. Íbúðalánasjóður telur að ákvæði um að ekki megi veðsetja eignir án heimildar frá sýslumanni eigi ekki við þar sem hér sé lánveitingin forsenda fyrir eignamynduninni. Þá sé ljóst að umfangsmikill rekstur leiguíbúða teljist atvinnurekstur, og ákvæðin eigi ekki við í málinu af þeim sökum.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Sjá meira