Logaland kærir innkaupadeild Landspítalans til Samkeppniseftirlitsins 22. febrúar 2013 09:51
Fyrirtækið Logaland hefur kært innkaupadeild Landspítalans til Samkeppniseftirlitsins vegna vinnubragða í innkaupum á heilbrigðisvörum og –tækjum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að deildin annist innkaup og útboð fyrir Landspítalann á heilbrigðisvörum, en áætlað er að meirihlutinn af um 9 milljarða árlegri veltu á þeim markaði fari í gegnum innkaupadeildina. Logaland ehf telur að vinnubrögð innkaupadeildar standist að mörgu leyti hvorki ákvæði samkeppnislaga né ákvæði laga um opinber innkaup og skerði því samkeppni með alvarlegum hætti. Björn Líndal, lögmaður Logalands, lagði inn kæru þar sem meðal annars segir: „...þessi skerðing á samkeppni varðar ekki einungis viðskiptahagsmuni Logalands heldur hefur víðtækari skaðleg áhrif á samkeppni á markaði með lækningatæki, hjúkrunarvörur og hjúkrunartæki, rannsóknarvörur og rannsóknartæki." Svo segir í tilkynningunni: „Síðustu ár höfum við neyðst til að leita til kærunefndar útboðsmála vegna vinnubragða innkaupadeildar sem ekki standast kröfur laga um opinber innkaup" , segir Ingibergur Erlingsson, hjá Logalandi ehf. „Þrátt fyrir að kærunefnd útboðsmála hafi margoft fellt úrskurði gegn deildinni, þá virðast vinnubrögðin ekki breytast. Þvert á móti þá virðast viðbrögðin hafa verið þau að refsa Logalandi fyrir að fara kæruleiðina." Innkaupadeild Landspítalans hefur ítrekað brotið lög um innkaup opinberra aðila á síðustu árum og þurft að falla frá samningum eða endurtaka stór útboð þess vegna. Nýlega féll úrskurður þar sem stöðvuð eru kaup á tækjum til nýrrar kjarnarannsóknarstofu fyrir meira en sex hundruð milljónr og lagt fyrir Ríkiskaup að auglýsa innkaupin að nýju.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira